0

Gleðilegt nýtt ár 2010

Posted by hallag on jan. 4, 2010 in Uncategorized

Það er bara komið 2010, ótrúlegt hvað tíminn flýgur. Það var líf og fjör hjá börnunum að koma aftur í skólann og maður minn hvað það þurfti að spjalla mikið um jólin og pakkana.

Við ætlum að byrja nýja árið af krafti og vera dugleg í náminu, sem lærist best í gegnum leikinn :)

Við ætlum að hafa Zippý tíma strax á morgun og halda áfram að spá í tilfinningar okkar og hvernig við getum sem best unnið úr þeim.

Á miðvikudaginn er Þrettándinn og ætla allir í skólanum að eiga góða stund saman í skóginum í fyrsta tímanum, syngja o.fl. Börnin eiga að koma vel klædd og líka með vasaljós ef það er til. Það er svo skemmtilegt í myrkrinu.

Gott samstarf milli heimilis og skóla er grundvöllur fyrir námi barnanna og vonum við að foreldrar haldi áfram að vera í góðu samstarfi við okkur.

Kveðja Halla og 1-2 bekkur  :)

 
2

Jólahringekja og Litlu jólin

Posted by hallag on des. 17, 2009 in Uncategorized

Í gær var yngsta stigið með jólaföndurhringekju. Hringekjunni var skipt upp í þrjár stöðvar og voru búin til m.a. krans, tréjólasveinar og pappírsjólatré. Það voru öll börnin mjög dugleg og skemmtu sér líka allir mjög vel.

Á morgun eru litlu jólin kl:9.00-12.30 og mikil tilhlökkun í gangi. Það eru nokkur atriði sem mig langar að minna á:

  1. Börnin komi með pakka sem kostar um 500kr. fyrir pakkaruglið okkar. 
  2. Koma með kerti til að hafa á stofujólunum.
  3. Litla tösku undir jólapakkann.
  4. Mæta í betri fötunum með jólaskapið.
  5. Koma með jólasveinahúfu.
  6. Það eru skólabílar.

Kæru fjölskyldur, mínar bestu óskir um gleðileg jól og farsældar á komandi ári, með ósk um áframhaldandi gott samstarf.

Jólakveðjur Halla  :)

 
0

Jólin, jólin, jólin koma brátt lalalalala…

Posted by hallag on des. 11, 2009 in Uncategorized

                          Kæru foreldrar            

Jólin nálgast og börnin verða spenntari með hverjum deginum sem líður. Við erum búin að nota síðustu daga til að skreyta stofuna okkar og hengja upp jólaseríur. Í næstu viku ætlum við að gera okkur glaðan dag og brjóta upp daginn með ýmsum uppákomum

  • Þriðjudaginn 15.desember fer yngsta stigið út í leikskóla að sjá jólaleikrit.
  • Miðvikudaginn 16.desember ætlum við að hafa jólaföndurhringekju á yngsta stiginu í tveimur síðustu tímunum. Foreldrar eru velkomnir með.
  • Fimmtudaginn 17.desember er smákökunesti. Börnin mega hafa með sér smákökur í nesti. Það eru vinsamleg tilmæli að börnin komi ekki með smákökur sem innihalda hnetur vegna slæms ofnæmis hjá nokkrum börnum.
  • Okkur langar líka að minnast á nokkur atriði fyrir Litlu jólin sem eru föstudaginn 18.desember kl:9.00-12.30.
  1. Það eru skólabílar þennan dag.
  2. Börnin komi með pakka sem kostar innan við 500kr. fyrir pakkaruglið okkar. Best væri ef pakkinn er kominn fyrir föstudaginn.
  3. Koma með kerti til að hafa á stofujólunum.
  4. Litla tösku undir jólapakkann.
  5. Mæta í betri fötunum með jólaskapið.

Með kærri jólakveðju: Anna Þórný, Halla og Sjöfn

 
0

Útikennsla og fleira

Posted by hallag on des. 3, 2009 in Uncategorized

Börnin hafa farið í útikennslu í íþróttum og verkstæði, við ætlum að grípa tækifærið þegar kemur meiri snjór og minna rok að fara og renna okkur með elstu börnunum í leikskólanum. Ef veður verður gott í næstu viku ætlum við að fara í skóginn að leika okkur og týna köngla m.a.

Þessa dagana erum við í ýmiskonar verkefnum og leikjum sem tengjast líkamanum okkar. Við fórum t.d. í „Jósep segir“ í morgun sem var mjög skemmtilegur. Þar reyndi á að hlusta vel og finna réttan líkamshluta til að nota eða benda á :)

Það er ýmislegt skemmtilegt á döfinni hjá okkur á næstu vikum. Næsta þriðjudag fer 1. bekkur að baka piparkökur í leikskólanum, 15.des fer allt yngsta stigið á brúðuleiksýningu í leikskólanum um Grýlu, 16.des ætlar yngsta stigið að vera með jólahringekju í tveimur síðustu tímunum og 18.des eru svo litlu jólin okkar. :) Það eru ekki nema tvær vikur fram að jólafríi sem er alveg ótrúlegt.

En margt skemmtilegt á döfinni :)

Kveðja Halla og 1-2 bekkur

 
0

Heimalestur :)

Posted by hallag on nóv. 30, 2009 in Uncategorized

 Ég vil minna enn og aftur á mikilvægi þess að þjálfa lestur heima.
Þjálfun skiptir ÖLLU máli varðandi lestarfærni nemenda.

Nokkrir góðir punktar varðandi heimalestur.

  • Skapaðu notalegt andrúmsloft þegar barnið er að lesa. Gefðu því nægan tíma. Gott er að byrja með 10-15 mínútum en lengja það svo upp í 20-30 mínútur
  • Ef barnið helst illa við lesturinn er gott að skipta því niður í styttri tímabil en reyna samt að halda sömu tímalengd.
  • Rannsóknir hafa sýnt að barn þarf að lesa nýtt orð a.m.k. 4 sinnum til þess að festa það í svokölluðu lestrarminni/orðabanka. Mikilvægi endurtekins lesturs er því aldrei tíundað nægilega oft. Betra er að lesa skemur og oftar heldur en mikið og sjaldnar.
  • Lesa minna daglega heldur en mikið sjaldan. Ekki safna upp lestrinum
  • Raddlestur( að lesa upphátt) er mikilvægur fram eftir allri skólagöngu barnsins. Orð festast ekki sem skyldi í orðabanka/lestrarminni nema þau séu lesin bæði sjónrænt!! og heyrnrænt!!
  • Raddlestur styrkir stafsetningafærni barnsins því þegar það fer að skrifa þá notar það orð úr lestrarminninu/orðabankanum og mikilvægt er að þar sé orðið ,,rétt”.

Sem betur fer er á flestum heimilum haldið vel utan um heimalestur barna en því  miður ekki öllum. Ég hvet því ALLA til að leggja rækt við lestur barna sinna, það skiptir sköpum varðandi framhaldið.

Í grunnskólanum skal unnið að því í samvinnu við heimilin að búa nemendur undir líf og starf. Frumábyrgð er á uppeldi og menntun hvílir á foreldrum. Hlutur grunnskólans felst einkum í því að sjá nemendum fyrir formlegri fræðslu og taka þátt í félagslegri mótun þeirra. ……. Almenn menntun er besta veganesti sérhvers einstaklings í þekkingar- og upplýsingasamfélaginu.(Aðalnámskrá grunnskóla. 1999. Almennur hluti bls 14)

 Kær kveðja Halla :)

 
0

Zippý og leikskólaheimsókn

Posted by hallag on nóv. 24, 2009 in Uncategorized

Dagurinn í dag var góður og nóg að gera að vanda. 1.bekkur fór í heimsókn í leikskólann og fengu allir að fara í einingakubba. Börnunum var skipt í stráka og stelpu hóp og unnu síðan hóparnir saman að einni byggingu hvor hópur. Strákarnir gengu mjög ákveðið til verks og var markmiðið svolítið fyrst að safna að sér kubbum. Svo fór að byggjast upp flottur kastali með dýrum, varnarskildi og ýmsu fleiru. Stelpurnar byggðu fínlegri kastala með heitum potti og nammiköku. Þetta var skemmtileg heimsókn og þökkum við kærlega fyrir okkur.

Í dag var svo annar Zippý tíminn okkar. Við köfuðum í tilfinningarnar dapur, leiður og reiður. Sumum fannst erfitt að tala um þetta og gott væri ef þið heima spjölluðuð líka um þessa sterku tilfinningu og bendi ég ykkur á heimasíðu Zippýs ykkur til aðstoðar. Það kom margt gott fram eins og hvernig við getum brugðist við m.a. þegar einhver er leiður, við ætlum að hugga hann og bjóða svo að vera með að leika. Ekkert smá flottir krakkar.

2.bekkur fékk heimanámið sitt og eiga þau að skila því á föstudaginn.

Öll börnin fengu heim með sér bækling um einelti og hvet ég ykkur til að skoða hann vel. Einelti er með því hræðilegra sem getur komið fyrir mann, brýnið þetta vel fyrir börnunum að við komum fram við aðra eins og við viljum láta koma fram við okkur.

Kveðja Halla og 1-2 bekkur

 
1

Fyrsti Zippý tíminn

Posted by hallag on nóv. 17, 2009 in Uncategorized

Í dag fórum við í fyrsta tímann okkar í Vinir Zippýs. Þetta gekk alveg ótrúlega vel og börnin mjög opinn að ræða um tilfinningar sem er fyrsta umræðuefnið okkar. Við ræddum m.a. hvað er það sem gerir okkur glöð og hvað er það sem gerir okkur leið. Þar kom ýmislegt umhugsunarvert fram.Ég hvet ykkur til að ræða þetta með börnunum heima og kynna ykkur líka námsefni til að vinna heima á vef Lýðheilsustöðvar – Vinir Zippýs.

Kveðja Halla og 1-2 bekkur

 
0

Ýmislegt

Posted by hallag on nóv. 12, 2009 in Uncategorized

Það er nóg um að vera hjá okkur sem brýtur upp hið hefðbundna skólastarf.

Á mánudag er Dagur íslenskrar tungu og verða börnin í skólanum alveg til 15.10. Það verður hefðbundin kennsla fram að hádegi og eftir hádegi á að brjóta upp daginn með ýmiskonar uppákomum. Við ætlum m.a. að faðma skólann okkar, fara í skóginn og taka þátt í ýmsum verkefnum.

Ég er búin að setja inná síðuna fleiri krækjur t.d. Vini Zippýs, Heimili og skóla og Fjölmenningarsetrið. Endilega kíkið á þessar síður og kynnið ykkur þann fróðleik sem þar er á mörgum tungumálum.

Börnin koma með bréf með sér heim á morgun um ýmis atriði sem gott er að hnykkja á reglulega. Farið vel yfir þetta með börnunum ykkar.

Í síðasta tímanum í dag tók ég myndir af bekkjunum bæði saman og í sitt hvoru lagi. Þetta voru sparimyndir, grettumyndir rassamyndir og fleira. Set þær fljótlega inná netið.

Verið dugleg að hafa samband ef eitthvað er, alltaf gaman að heyra frá foreldrum.

Kveðja Halla og 1-2 bekkur.

 
0

Læsi og fleira

Posted by hallag on nóv. 10, 2009 in Uncategorized

Í dag fóru börnin í Verkefni sem heitir Læsi. Þetta er lestrarskimunarverkefni til að skoða hvar börnin standa í lestrarkunnáttu og líka að sjá viðhorf þeirra til lesturs. Börnin stóðu sig eins og hetjur og kláruðu verkefnin með glans :) Niðurstöðurnar úr Læsi munu fylgja vitnisburði barnanna sem koma heim 18.nóvember.

Við tókum smá upphitun á Zippý líka í dag en við komum til með að hafa Zippý tíma í síðustu tveimur tímunum á þriðjudögum. Það sem við gerðum í dag var að skoða plakat með reglum sem gilda í þessum tímum sem öðrum auðvitað og einnig fengu börnin að sjá mynd að börnunum sem eru í sögunum sem tengjast verkefninu. Plakötin munu hanga uppá vegg til að minna okkur á. Smám saman bætist svo við það sem við hengjum upp eins og t.d. sáttablómið. Ég hvet ykkur til að skoða þetta efni á netinu og sérstaklega foreldrasíðuna en þar eru verkefni sem hægt er að vinna með börnunum heima.  

Á morgun miðvikudag er starfsdagur og enginn skóli hjá börnunum.

Kveðja Halla og 1-2 bekkur

 
2

Vinir og meiri vinir :)

Posted by hallag on nóv. 3, 2009 in Uncategorized

Í næstu viku ætla ég að byrja á verkefni sem heitir „Vinir Zippýs“ eða „Zippy´s Friends“ . Verkefnið er alþjóðlegt forvarnarverkefni á sviði geðheilsu fyrir börn sem Lýðheilsustöð hleypti af stokkunum árið 2005. Um er að ræða námsefni ætlað 6-7 ára börnum sem notað hefur verið með góðum árangri víða um heim.

Börnin fengu með sér heim í dag bækling sem segir betur frá þessu verkefni. Kennslan verður með þannig sniði að við höfum sérstakan Zippý tíma eina til tvær kennslustundir á viku samliggjandi. Verkefnið tekur 24.vikur með einhverjum hléum vegna jóla og annarra hátíða.

Ég hvet ykkur til að kynna ykkur þetta líka á heimasíðu Lýðheilsustöðvar http://www.lydheilsustod.is/lydheilsustod/gedraekt/vinir-zippy

Endilega hafið samband ef einhverjar spurningar vakna. Við kynntum okkur þetta aðeins í dag og börnunum leist vel á og hlakka m.a. til að búa til hann Zippý. Þetta verður spennandi.

Kveðja Halla og 1-2. bekkur

Copyright © 2010 1. og 2. bekkur All rights reserved.
Desk Mess Mirrored v1.2 theme from BuyNowShop.com.