0

Næsta vika

Posted by hallag on apríl 16, 2010 in Uncategorized

Það er nóg um að vera í næstu viku.
Á þriðjudaginn er bekkjarmyndataka hjá 1.bekk og við verðum að muna að mæta í betri fötunum og æfa brosið heima svo myndin verði flott.
Á miðvikudag, síðasta vetrardag er okkur boðið bæði 1. og 2. bekk á Vorhátíð leikskólans. Þar verður mikið húllumhæ og hlökkum við mikið til. [...]

 
0

Vorið er komið :)

Posted by hallag on apríl 14, 2010 in Uncategorized

Það er löngu orðið tímabært að blogga hérna hjá okkur í 1 og 2 bekk.
Við erum byrjuð af krafti aftur eftir gott páskafrí og komu börnin vel stemmd til baka. Það er ýmislegt sem við ætlum að hafa fyrir stafni nú næstu vikur. Yngsta stigið ætlar að hittast einu sinni í viku og syngja saman [...]

 
1

Árshátíð

Posted by hallag on mars 23, 2010 in Uncategorized

Nú er allt á fullu við að æfa fyrir árshátíð í öllum bekkjum og eru krakkar í diskófötum hér um alla ganga.
1 og 2 bekkur stendur sig mjög vel á æfingum og erum við orðin spennt að fá að sýna afraksturinn á föstudaginn um kl:12.30. Búningar barnanna eru skrautlegir og skemmtilegir en það sem skiptir [...]

 
1

Leiksýning

Posted by hallag on mars 15, 2010 in Uncategorized

Fyrsti til sjöundi bekkur fór á leiksýningu í morgun í Árnes. Þar tóku á móti okkur krakkarnir í Þjórsárskóla og sýndu okkur leikritið um hana Ronju ræningjadóttur. Þetta var alveg frábært í alla staði. Leikmyndin og allt sem kom að sýningunni var unnið af krökkunum sjálfum og var mjög vel gert. Leikritið var mjög skemmtilegt [...]

 
0

Mars byrjaður :)

Posted by hallag on mars 11, 2010 in Uncategorized

Mars er byrjaður sem þýðir að skólaárið þýtur áfram.
Það er alltaf líf og fjör í kringum okkur í 1.og 2.bekk, þannig að það leiðist engum. Þessar vikurnar erum við mikið að lesa, bæði þau fyrir mig og ég fyrir þau. Við erum t.d. að lesa „Bláa hnöttinn“ og vinna verkefni tengdum sögunni í 1.bekk. Í [...]

 
1

Það er fjör í 1 og 2 bekk :)

Posted by hallag on feb. 19, 2010 in Uncategorized

Það er búið að vera svo mikið um að vera hjá okkur að við vitum varla hvað við heitum þessa dagana.
Við héldum Þorrablót með öllu yngsta stiginu sem tókst mjög vel. Fjórði bekkur sá um blótið og voru þau búin að setja fram ýmislegt góðgæti eins og súra punga,hvalrengi og grísasultu. Flatkökur með hangijöti, harðfiskur, [...]

 
1

Útikennsla og fleira

Posted by hallag on feb. 4, 2010 in Uncategorized

Það er kominn febrúar ef einhver var ekki búinn að taka eftir því
Það er nóg að gera hjá okkur í 1-2 bekk eins og venjulega. Við fengum þessa fínu tónleika frá Djasskvartett Reykjavíkur á þriðjudaginn og þeir voru þvílíkt flottir. Börnin lærðu m.a. lagið „Ég hef taktinn“ og einnig sungu þau „Snert hörpu [...]

 
0

Tónlist fyrir alla

Posted by hallag on jan. 21, 2010 in Uncategorized

Þriðjudaginn 2. febrúar  fá nemendur skólans heimsókn frá Djasskvartett Reykjavíkur. Tilgangurinn með heimsókninni verður að kynna fyrir nemendum tónlist undir yfirskriftinni „Tónlist fyrir alla“. Nú er komið að djasskynningu með sannkölluðu landsliði hljóðfæraleikara, skipað þeim Sigurði Flosasyni (saxófónn), Gunnlaugi Briem (trommur), Eyþóri Gunnarssyni (píanó) og Tómasi R. Einarssyni (kontrabassi).
Á tónleikunum sem þeir nefna „Ég hef taktinn“ munu þeir leggja áherslu á að djassinn [...]

 
0

Heimsókn, spil og fleira

Posted by hallag on jan. 14, 2010 in Uncategorized

Næstu vikurnar ætlar hann Björgvin Ágúst að koma í heimsókn til okkar í 1.bekk. Við bjóðum hann hjartanlega velkomin og vonum að hann njóti þess að vera með okkur í smátíma.
Það er mikið spilað þessa dagana hjá okkur og eru börnin ansi sleip í spilamennskunni, jafnframt því að þurfa að nota lesturinn og stærðfræðina til [...]

 
0

Draugar og annað skemmtilegt

Posted by hallag on jan. 7, 2010 in Uncategorized

Þrettánagleðin var mjög skemmtileg og nutu börnin að vera með vasaljósin sín í myrkrinu. Það var heilmikið sungið og spjallað. 1.og 2. bekkur skellti sér í göngutúr um skóginn eftir gleðina og sáum við hinar ýmsu kynjaverur m.a. dauðan úlf sem hékk uppi í tré.  Við notuðum vasaljósin til að sjá m.a. ofan í lækinn og röktum [...]

Copyright © 2010 1. og 2. bekkur All rights reserved.
Desk Mess Mirrored v1.2 theme from BuyNowShop.com.