Það er fjör í 1 og 2 bekk :)
Það er búið að vera svo mikið um að vera hjá okkur að við vitum varla hvað við heitum þessa dagana.
Við héldum Þorrablót með öllu yngsta stiginu sem tókst mjög vel. Fjórði bekkur sá um blótið og voru þau búin að setja fram ýmislegt góðgæti eins og súra punga,hvalrengi og grísasultu. Flatkökur með hangijöti, harðfiskur, hákarl, kleinur,slátur og sviðasultu. Þetta rann ljúflega niður með mysudrykk að hætti Helgu Teits. Fjórði bekkur sýndi okkur nokkra leikþætti um þá Bakkabræður. Þetta er mjög skemmtilegur og góður siður.
Á öskudeginum var mikið húllumhæ. Allir voru í búning og lifðu sumir sig meira í hlutverkið en aðrir. Við fukum út í Félagsheimili og þar var skemmtun að hætti Foreldrafélags skólans. Slegin kötturinn úr tunnunni og við áttum tunnukónginn í ár hann Þorvald Loga, sem fékk pizzaveislu í verðlaun. Óskum við honum til hamingju með það. Einnig voru veitt verðlaun fyrir frumlegasta, skemmtilegasta og flottasta búninginn.
Það eru myndir inná myndasíðunni okkar frá báðum þessum viðburðum.
Í þessari viku fóru bæði 1 og 2 bekkur í lestrarskimunarprófið Læsi. Það gekk mjög vel að leggja fyrir og niðurstöðurnar munu fylgja námsmatinu sem börnin fá heim með sér næsta föstudag.
Næsta mánudag er starfsdagur, börnin eiga frí þann dag.
Góða helgi
Halla og 1-2 bekkur
Alltaf gaman að forvitnast hvað þið eruð að bralla