Útikennsla og fleira

Posted by hallag on feb. 4, 2010 in Uncategorized |

Það er kominn febrúar ef einhver var ekki búinn að taka eftir því :)

Það er nóg að gera hjá okkur í 1-2 bekk eins og venjulega. Við fengum þessa fínu tónleika frá Djasskvartett Reykjavíkur á þriðjudaginn og þeir voru þvílíkt flottir. Börnin lærðu m.a. lagið „Ég hef taktinn“ og einnig sungu þau „Snert hörpu mína“ með þeim. Börnin sátu alveg heilluð á meðan þeir léku á hljóðfærin, sögðu sögur, sungu og fleira. Hann Gulli trommari spilaði á litla trommu og var hljóðið í henni alveg magnað eiginlega ólýsanlegt. Frábært að fá svona hæfileikaríkt fólk til að kynna fyrir börnunum ólíka tónlist :)

Við erum búin að vera dugleg að nota skóginn okkar undanfarna daga. Við fórum m.a. í leik sem heitir Flækjuleikur og börnin fengu að leika frjálst í skóginum. Mjög skemmtilegt.

Í næstu viku ætlum við að hafa Þorrablót á yngsta stigi og þorrahringekju. Mjög spennandi. Í tilefni af þessu erum við að syngja þorralög eins og Þorraþræll, Fósturlandsins Freyja og Táp og fjör. Það gengur misvel, en samt skemmtilegt.

Segjum betur frá því síðar.

Kveðja Halla og 1-2 bekkur

1 Comment

Inga
feb. 4, 2010 at 4:29 e.h.

Alltaf gaman að fylgjast með hvað þessir skemmtilegu krakkar eru að gera :) Hafið það svo gott í þorrahringekjunni í næstu viku!


 

Reply

Copyright © 2010 1. og 2. bekkur All rights reserved.
Desk Mess Mirrored v1.2 theme from BuyNowShop.com.