Draugar og annað skemmtilegt

Posted by hallag on jan. 7, 2010 in Uncategorized |

Þrettánagleðin var mjög skemmtileg og nutu börnin að vera með vasaljósin sín í myrkrinu. Það var heilmikið sungið og spjallað. 1.og 2. bekkur skellti sér í göngutúr um skóginn eftir gleðina og sáum við hinar ýmsu kynjaverur m.a. dauðan úlf sem hékk uppi í tré.  Við notuðum vasaljósin til að sjá m.a. ofan í lækinn og röktum dýraspor.

Það kviknaði mikill áhugi á draugasögum hjá börnunum og las ég fyrir þau í morgun sögur sem gerst hafa hér í sveit t.d. söguna um Giljamótadrauginn sem heldur til á Tæpistíg í Langholtsfjalli. Hann átti það til að fæla hesta sem verið var að reka þar um.

Næsta þriðjudag ætlum við að hafa dótadag í tveimur síðustu tímunum. Börnin fá þá tækifæri að sýna hvað þau fengu m.a. í jólagjöf.  Gaman – gaman.

Við byrjuðum líka í Zippý síðasta þriðjudag og vorum við að fjalla um tilfinninguna að vera afbrýðisamur eða öfundsjúkur.  Börnin voru mjög dugleg að tjá sig um það. Þau eru að verða mun opnari að tjá sig um þær tilfinningar sem við erum að taka fyrir í þessum tímum og oft er eins og þeim létti að geta talað um þetta óhindrað, það hjálpar þeim líka að skilja þetta betur. Endilega spjallið um þetta heima líka.

Svo það er alltaf nóg að gera hjá okkur :)

Kveðja Halla og 1-2 bekkur

Reply

Copyright © 2010 1. og 2. bekkur All rights reserved.
Desk Mess Mirrored v1.2 theme from BuyNowShop.com.