Heimalestur :)
Ég vil minna enn og aftur á mikilvægi þess að þjálfa lestur heima.
Þjálfun skiptir ÖLLU máli varðandi lestarfærni nemenda.
Nokkrir góðir punktar varðandi heimalestur.
- Skapaðu notalegt andrúmsloft þegar barnið er að lesa. Gefðu því nægan tíma. Gott er að byrja með 10-15 mínútum en lengja það svo upp í 20-30 mínútur
- Ef barnið helst illa við lesturinn er gott að skipta því niður í styttri tímabil en reyna samt að halda sömu tímalengd.
- Rannsóknir hafa sýnt að barn þarf að lesa nýtt orð a.m.k. 4 sinnum til þess að festa það í svokölluðu lestrarminni/orðabanka. Mikilvægi endurtekins lesturs er því aldrei tíundað nægilega oft. Betra er að lesa skemur og oftar heldur en mikið og sjaldnar.
- Lesa minna daglega heldur en mikið sjaldan. Ekki safna upp lestrinum
- Raddlestur( að lesa upphátt) er mikilvægur fram eftir allri skólagöngu barnsins. Orð festast ekki sem skyldi í orðabanka/lestrarminni nema þau séu lesin bæði sjónrænt!! og heyrnrænt!!
- Raddlestur styrkir stafsetningafærni barnsins því þegar það fer að skrifa þá notar það orð úr lestrarminninu/orðabankanum og mikilvægt er að þar sé orðið ,,rétt”.
Sem betur fer er á flestum heimilum haldið vel utan um heimalestur barna en því miður ekki öllum. Ég hvet því ALLA til að leggja rækt við lestur barna sinna, það skiptir sköpum varðandi framhaldið.
Í grunnskólanum skal unnið að því í samvinnu við heimilin að búa nemendur undir líf og starf. Frumábyrgð er á uppeldi og menntun hvílir á foreldrum. Hlutur grunnskólans felst einkum í því að sjá nemendum fyrir formlegri fræðslu og taka þátt í félagslegri mótun þeirra. ……. Almenn menntun er besta veganesti sérhvers einstaklings í þekkingar- og upplýsingasamfélaginu.(Aðalnámskrá grunnskóla. 1999. Almennur hluti bls 14)
Kær kveðja Halla