0

Afmæli og sund

Posted by hallag on okt. 28, 2009 in Uncategorized

Eins og væntanlega hefur ekki farið fram hjá neinum þá er Flúðaskóli að halda uppá afmælið sitt á föstudaginn og vonum við að sem flestir geti komið í afmælið.
Börnin eru að leggja síðustu hönd á bækurnar og hefur það gengið mjög vel. Bækurnar og fleiri verkefni verða til sýnis í stofunni á afmælinu. Við verðum með [...]

 
0

Leikskólaheimsókn og bókasafn

Posted by hallag on okt. 22, 2009 in Uncategorized

Á þriðjudaginn skelltu 1.bekkingar sér í heimsókn í leikskólann. Við tókum þar þátt í vali. Börnin gátu valið sér svæði til að vinna/leika á. Svæðin sem voru í boði voru skógurinn, einingakubbar, myndlist, tónmennt og trédúkkur. 1.bekkur dreifðist nokkuð á svæðin en flestir fóru í skóginn. Í skóginum var boðið uppá leiki, tálgun, þrykk, teikna og [...]

 
1

Afmæli skólans og fleira

Posted by hallag on okt. 20, 2009 in Uncategorized

Við erum í óða önn að viða að okkur upplýsingum vegna verkefnavinnu tengdri afmæli skólans. Við erum að útbúa bók sem inniheldur m.a. grunnskólaættatréð, bekkurinn minn, þjóðsögu og fleira. Það verður mjög spennandi að sjá hvernig til tekst. Bækurnar verða til sýnis á afmæli skólans.
Það gengur vel í lestrinum hjá okkur og það er ánægjulegt [...]

 
0

Lestur og meiri lestur

Posted by hallag on okt. 10, 2009 in Uncategorized

Í námi barnanna skiptir lesturinn gríðalega miklu máli eins og við vitum. Næstu vikurnar ætla ég að leggja mikla áherslu á lestrarnámið hjá börnunum og skiptir þá höfuðmáli að heimilin taki líka þátt. Það er nauðsynlegt að þau æfi sig á hverjum degi í stutta stund og að það sé lesið fyrir þau líka. Þegar [...]

 
0

Hlaupa – Hlaupa :)

Posted by hallag on okt. 6, 2009 in Uncategorized

Börnin í 1-2 bekk eru ekkert smá dugleg að hlaupa. Þau fóru létt með að skokka 2,5 eða 5 km. í dag í Norræna skólahlaupinu. Það blés svolítið köldu í dag en börnin létu það ekkert á sig fá. Þegar hlaupinu var lokið fengu allir súkkulaðikökusneið og ískalda mjólk sem rann ljúflega niður. Það voru [...]

 
0

Norræna skólahlaupið :)

Posted by hallag on okt. 5, 2009 in Uncategorized

Norræna skólahlaupið verður haldið þriðjudaginn 6. október kl. 13:00. Hægt er að velja um þrjár vegalengdir, 2,5, 5 og 10 km hlaup. Gert er ráð fyrir því að allir nemendur taki þátt og því þurfa þeir að koma með viðeigandi klænað og skó. Boðið verður upp á veitingar að hlaupi loknu. Nú er bara að [...]

 
1

Fjöruferð :)

Posted by hallag on okt. 1, 2009 in Uncategorized

Fjöruferðin okkar var bara snilld. Veðrið lék við okkur og allir í sínu besta skapi. Við byrjuðum daginn í Stokkseyrarfjöru og skoppuðu börnin um allt. Það sem var mest spennandi var að finna lifandi dýr eins og krabba, snigla, marflær og fleira. Við veiddum þó nokkuð af kröbbum og öðru sjávarfangi og tókum með okkur í [...]

Copyright © 2010 1. og 2. bekkur All rights reserved.
Desk Mess Mirrored v1.2 theme from BuyNowShop.com.