0

Næsta vika

Posted by hallag on apríl 16, 2010 in Uncategorized

Það er nóg um að vera í næstu viku.

Á þriðjudaginn er bekkjarmyndataka hjá 1.bekk og við verðum að muna að mæta í betri fötunum og æfa brosið heima svo myndin verði flott.

Á miðvikudag, síðasta vetrardag er okkur boðið bæði 1. og 2. bekk á Vorhátíð leikskólans. Þar verður mikið húllumhæ og hlökkum við mikið til. Það er aldrei að vita nema að þið fáið einhverjar furðuverur heim úr skólanum þann daginn.

Á fimmtudaginn er Sumardagurinn fyrsti og frí í skólanum. Njótið dagsins með vonandi sól og blíðu.

Alltaf mikið um að vera hjá okkur :)

Kveðja Halla og 1-2 bekkur

 
0

Vorið er komið :)

Posted by hallag on apríl 14, 2010 in Uncategorized

Það er löngu orðið tímabært að blogga hérna hjá okkur í 1 og 2 bekk.

Við erum byrjuð af krafti aftur eftir gott páskafrí og komu börnin vel stemmd til baka. Það er ýmislegt sem við ætlum að hafa fyrir stafni nú næstu vikur. Yngsta stigið ætlar að hittast einu sinni í viku og syngja saman og ætla þær Anna Þórný eða Sjöfn að spila undir á gítar með. Við hittumst á þriðjudagsmorguninn og var það mjög skemmtilegt. Alltaf hressandi að byrja daginn á söng og smá hreyfingu.

Í tveimur síðustu tímunum í gær fengum við góða heimsókn. Tenglar bekkjanna þær Bára og Katrín komu og fóru með okkur í Bingó. Vinningarnir voru skemmtilegir t.d. fékk einn ferð fyrir tvo á Norðurpólinn með hjálp hugarflugsins :)   Í lokin fengu svo allir sleikjó. Þetta var gríðarleg spenna og börnin voru mjög dugleg að fylgjast með. Spennustigið var mjög hátt á tímabili. Við þökkum þeim kærlega fyrir.

Það má reyndar geta þess að við erum búin að skora á þær í vatnsslag þegar vorar meira. Þá stendur til að hafa vatnsbyssu og vatnsblöðru dag, við segjum betur frá því síðar. 

Í síðustu tveimur tímunum á miðvikudögum ætlum við að hafa útitíma alveg þangað til skólinn er búinn. Seinasta miðvikudag fórum við í skóginn í leiki og núna ætlum við í gönguferð að skoða fugla. Við ætlum síðan að nota fyrsta tímann á fimmtudögum til að vinna úr þessum ferðum.

Bara skemmtilegt hjá okkur.

Kveðja Halla og 1-2 bekkur

 
1

Árshátíð

Posted by hallag on mars 23, 2010 in Uncategorized

Nú er allt á fullu við að æfa fyrir árshátíð í öllum bekkjum og eru krakkar í diskófötum hér um alla ganga.

1 og 2 bekkur stendur sig mjög vel á æfingum og erum við orðin spennt að fá að sýna afraksturinn á föstudaginn um kl:12.30. Búningar barnanna eru skrautlegir og skemmtilegir en það sem skiptir mestu máli er að fyrst og fremst ætlum við að hafa gaman saman.

Hlökkum til að sjá sem flesta í diskóstuði.

Halla og 1-2 bekkur

 
1

Leiksýning

Posted by hallag on mars 15, 2010 in Uncategorized

Fyrsti til sjöundi bekkur fór á leiksýningu í morgun í Árnes. Þar tóku á móti okkur krakkarnir í Þjórsárskóla og sýndu okkur leikritið um hana Ronju ræningjadóttur. Þetta var alveg frábært í alla staði. Leikmyndin og allt sem kom að sýningunni var unnið af krökkunum sjálfum og var mjög vel gert. Leikritið var mjög skemmtilegt og vel leikið og sungið. Þetta er vonandi hefð sem við erum að koma á, á milli skólanna. Við getum svo vonandi boðið þeim til okkar að horfa á generalprufu árshátíðarinnar.

Kveðja Halla

 
0

Mars byrjaður :)

Posted by hallag on mars 11, 2010 in Uncategorized

Mars er byrjaður sem þýðir að skólaárið þýtur áfram.

Það er alltaf líf og fjör í kringum okkur í 1.og 2.bekk, þannig að það leiðist engum. Þessar vikurnar erum við mikið að lesa, bæði þau fyrir mig og ég fyrir þau. Við erum t.d. að lesa „Bláa hnöttinn“ og vinna verkefni tengdum sögunni í 1.bekk. Í 2.bekk erum við að lesa sögur af víkingum og gera verkefni tengdum þeim. Heilmikið um lesskilning svo það er eins gott að vera duglegur að einbeita sér vel.

Annars erum við að huga vel að árshátíðinni okkar þessa dagana þar sem þemað er Diskó. Við erum að spá í leiksýninguna okkar og búninga sem meiga vera mjög skrautlegir.

Börnin koma með töskupóst með sér á morgun sem útskýrir þetta betur.

Leikskólabörnin eru dugleg að heimsækja okkur og við þau. Við fórum um daginn og vorum með þeim í frjálsum leik út í leikskóla. Vorum svo heppinn að það var snjór þennan dag og við gátum rennt okkur saman. Það stóð alltaf til að skella sér út á íþróttavöll og fara að renna, en snjórinn var svo ansi stutt að það náðist ekki. Ekki er öll von úti enn, páskarnir eru eftir kannski með snjó.

Svo það er nóg um að vera að venju.

Kveðja Halla og 1-2 bekkur

 
1

Það er fjör í 1 og 2 bekk :)

Posted by hallag on feb. 19, 2010 in Uncategorized

Það er búið að vera svo mikið um að vera hjá okkur að við vitum varla hvað við heitum þessa dagana.

Við héldum Þorrablót með öllu yngsta stiginu sem tókst mjög vel. Fjórði bekkur sá um blótið og voru þau búin að setja fram ýmislegt góðgæti eins og súra punga,hvalrengi og grísasultu. Flatkökur með hangijöti, harðfiskur, hákarl, kleinur,slátur og sviðasultu. Þetta rann ljúflega niður með mysudrykk að hætti Helgu Teits. Fjórði bekkur sýndi okkur nokkra leikþætti um þá Bakkabræður. Þetta er mjög skemmtilegur og góður siður.

Á öskudeginum var mikið húllumhæ. Allir voru í búning og lifðu sumir sig meira í hlutverkið en aðrir. Við fukum út í Félagsheimili og þar var skemmtun að hætti Foreldrafélags skólans. Slegin kötturinn úr tunnunni og við áttum tunnukónginn í ár hann Þorvald Loga, sem fékk pizzaveislu í verðlaun. Óskum við honum til hamingju með það. Einnig voru veitt verðlaun fyrir frumlegasta, skemmtilegasta og flottasta búninginn. 

Það eru myndir inná myndasíðunni okkar frá báðum þessum viðburðum.

Í þessari viku fóru bæði 1 og 2 bekkur í lestrarskimunarprófið Læsi. Það gekk mjög vel að leggja fyrir og niðurstöðurnar munu fylgja námsmatinu sem börnin fá heim með sér næsta föstudag.  

Næsta mánudag er starfsdagur, börnin eiga frí þann dag.

Góða helgi

Halla og 1-2 bekkur

 
1

Útikennsla og fleira

Posted by hallag on feb. 4, 2010 in Uncategorized

Það er kominn febrúar ef einhver var ekki búinn að taka eftir því :)

Það er nóg að gera hjá okkur í 1-2 bekk eins og venjulega. Við fengum þessa fínu tónleika frá Djasskvartett Reykjavíkur á þriðjudaginn og þeir voru þvílíkt flottir. Börnin lærðu m.a. lagið „Ég hef taktinn“ og einnig sungu þau „Snert hörpu mína“ með þeim. Börnin sátu alveg heilluð á meðan þeir léku á hljóðfærin, sögðu sögur, sungu og fleira. Hann Gulli trommari spilaði á litla trommu og var hljóðið í henni alveg magnað eiginlega ólýsanlegt. Frábært að fá svona hæfileikaríkt fólk til að kynna fyrir börnunum ólíka tónlist :)

Við erum búin að vera dugleg að nota skóginn okkar undanfarna daga. Við fórum m.a. í leik sem heitir Flækjuleikur og börnin fengu að leika frjálst í skóginum. Mjög skemmtilegt.

Í næstu viku ætlum við að hafa Þorrablót á yngsta stigi og þorrahringekju. Mjög spennandi. Í tilefni af þessu erum við að syngja þorralög eins og Þorraþræll, Fósturlandsins Freyja og Táp og fjör. Það gengur misvel, en samt skemmtilegt.

Segjum betur frá því síðar.

Kveðja Halla og 1-2 bekkur

 
0

Tónlist fyrir alla

Posted by hallag on jan. 21, 2010 in Uncategorized

Þriðjudaginn 2. febrúar  fá nemendur skólans heimsókn frá Djasskvartett Reykjavíkur. Tilgangurinn með heimsókninni verður að kynna fyrir nemendum tónlist undir yfirskriftinni „Tónlist fyrir alla“. Nú er komið að djasskynningu með sannkölluðu landsliði hljóðfæraleikara, skipað þeim Sigurði Flosasyni (saxófónn), Gunnlaugi Briem (trommur), Eyþóri Gunnarssyni (píanó) og Tómasi R. Einarssyni (kontrabassi).

Á tónleikunum sem þeir nefna „Ég hef taktinn“ munu þeir leggja áherslu á að djassinn er skemmtileg, fjölbreytt og aðgengileg tónlist og að færa megi hvaða tónlist sem er í djassbúning. Við getum strax látið okkur hlakka til að upplifa góða skemmtun með þessum frábæru listamönnum.

 
0

Heimsókn, spil og fleira

Posted by hallag on jan. 14, 2010 in Uncategorized

Næstu vikurnar ætlar hann Björgvin Ágúst að koma í heimsókn til okkar í 1.bekk. Við bjóðum hann hjartanlega velkomin og vonum að hann njóti þess að vera með okkur í smátíma.

Það er mikið spilað þessa dagana hjá okkur og eru börnin ansi sleip í spilamennskunni, jafnframt því að þurfa að nota lesturinn og stærðfræðina til að spila. Við spilum Núma, samstæðuspil, veiðimann, olsen, stigaspil, baktal og margt fleira. Bara gaman að læra eitthvað nýtt.

Við vorum með dótadag á þriðjudaginn sem gekk alveg glimmrandi vel. Börnin voru alveg snillingar að leika sér saman og sýna hvort öðru dótið sem þau komu með. Mjög skemmtilegt, sem þýðir að við höfum dótadag aftur. Það gæti líka verið gaman að hafa útidótadag þegar er næst útikennsla.

Annars eru allir mjög frískir eftir fríið og jákvæð fyrir náminu, enda reynum við að hafa það eins fjölbreytt og við getum.

Kveðja Halla og 1.-2.bekkur

 
0

Draugar og annað skemmtilegt

Posted by hallag on jan. 7, 2010 in Uncategorized

Þrettánagleðin var mjög skemmtileg og nutu börnin að vera með vasaljósin sín í myrkrinu. Það var heilmikið sungið og spjallað. 1.og 2. bekkur skellti sér í göngutúr um skóginn eftir gleðina og sáum við hinar ýmsu kynjaverur m.a. dauðan úlf sem hékk uppi í tré.  Við notuðum vasaljósin til að sjá m.a. ofan í lækinn og röktum dýraspor.

Það kviknaði mikill áhugi á draugasögum hjá börnunum og las ég fyrir þau í morgun sögur sem gerst hafa hér í sveit t.d. söguna um Giljamótadrauginn sem heldur til á Tæpistíg í Langholtsfjalli. Hann átti það til að fæla hesta sem verið var að reka þar um.

Næsta þriðjudag ætlum við að hafa dótadag í tveimur síðustu tímunum. Börnin fá þá tækifæri að sýna hvað þau fengu m.a. í jólagjöf.  Gaman – gaman.

Við byrjuðum líka í Zippý síðasta þriðjudag og vorum við að fjalla um tilfinninguna að vera afbrýðisamur eða öfundsjúkur.  Börnin voru mjög dugleg að tjá sig um það. Þau eru að verða mun opnari að tjá sig um þær tilfinningar sem við erum að taka fyrir í þessum tímum og oft er eins og þeim létti að geta talað um þetta óhindrað, það hjálpar þeim líka að skilja þetta betur. Endilega spjallið um þetta heima líka.

Svo það er alltaf nóg að gera hjá okkur :)

Kveðja Halla og 1-2 bekkur

Copyright © 2010 1. og 2. bekkur All rights reserved.
Desk Mess Mirrored v1.2 theme from BuyNowShop.com.