Áherslur lokaannarinnar
Aðaláhersla verður lögð á eftirfarandi í íslensku og stærðfræði:
Íslenska
- Lestur
- Lesskilningur
- Ritun (inngangur, meginmál, lokaorð. Þ.e. kjötmikli hamborgarinn)
- Stafsetning
- Upplestur
- Kynnast sagnorðum og lýsingarorðum
- Fallbeyging nafnorða
- Nútíð / þátíð
Ég hef veitt því athygli að sumir nemendanna hafa ekki lesið heima í yfir mánuð. Endilega látið nem. lesa heima.
Stærðfræði
- Stórar tölur
- Peningar
- Neikvæðar tölur
- Mínus: að fá lánað
- Samlagning: að geyma
- Margföldun
- Klukkan
- Deiling
- Námundun að tug og hundraði
- Mynstur
- Mælingar
- Hnit
- Tölfræði: að telja, flokka, skrá og lesa úr niðurstöðum
Sumir nemendur eru farnir að vera svolítið kærulausir með skil á heimanámi. Þetta hefur gengið mjög vel fram að þessu. Nú skulum við taka þessa síðustu önn vetrarins alvarlega og sinna vel bæði heimanámi og heimalestri.
Sumir nemendanna vantar strokleður og límstifti. Spyrjið endilega börnin ykkar og kaupið handa þeim strokleður, límstifti og kannski blýant. Það er alltaf gaman að fá nýtt, sérstaklega þegar það er komin smá þreyta í mannskapinn.
Baráttukveðja, Anna Þórný
Want to Leave a Reply?