Snjóstríð

Í dag, þriðjudag, gerðist það því miður að svokallað snjóstríð virðist hafa gengið langt yfir strikið. Í snjóstríðinu var 3. bekkur og annar eldri bekkur. Í eldri bekknum voru bæði fleiri og sterkari nemendur og fannst 3. bekk eins og það hafi þvílíkt verið vaðið yfir þá. Nemendur komu ansi heitt í hamsi inn úr frímínútum, annaðhvort grátandi eða mjög reiðir. Þetta var rætt fram og tilbaka. Það vildi þannig til að seinna um daginn eru þessir 2 bekkir saman í tíma og urðu því allir í raun að sættast, hafa því flestir róast og tekist í hendur. Börnin gætu þurft að tjá sig eitthvað um þetta þegar þau koma heim úr skóla í dag.

Ég er nú þegar búin að láta skólastjóra vita af atvikinu. Eins og við vitum þá eiga þeir sem eru í útigæslu að passa að svona gerist ekki, en ég veit að þetta gerðist mjög hratt.


Want to Leave a Reply?