Generalprufa árshátíðar yngsta stigs verður á fimmtudagsmorguninn og verður elsta stigi skólans boðið ásamt nemendum Þjórsárskóla. Nemendur þurfa því að koma með diskófatnað sinn á morgun, miðvikudag eða á fimmtudaginn. Þeir verða með blá eða bleik ennisbönd (eigið val) sem þeir fá í skólanum.
Fyrirkomulag árshátíðar verður með breyttu sniði þetta árið, sjá dagskrá hér fyrir neðan.
Fimmtudagur 25. mars kl. 19.00 – 23.00
Árshátíð elsta stigs ásamt starfsmönnum, 7. bekkingum í Flúðaskóla og Þjórsárskóla boðið að vera með. Hóflegur aðgangseyrir, nánar auglýst síðar.
fordrykkur og móttaka
borðhald
kennara- og starfsmannagrín
diskótek
Föstudagur 26. mars kl. 12.30 – 14.30
Árshátíð yngsta stigs og miðstigs.
Allir eru velkomnir [...]
Föstudaginn 26. mars verður árshátíðin okkar þar sem þemað verður DISKÓ. Við ætlum að vera með litla diskósyrpu (hluta úr 3 lögum).
Nemendurnir þyrftu að fara að huga að fatnaði sem hentar fyrir diskó. Ég hef rætt þetta aðeins við börnin og veit ég að sumir strákanna eiga hvítar gallabuxur og hentar það t.d. vel, hvítar skyrtur, allt [...]
Þjórsárskóli bauð 1. – 7. bekk á leiksýningu á skólatíma í dag, þau voru með árshátíð á föstudaginn þar sem nemendur sýndu leikritið Ronju Ræningjadóttur. Skólastjóri Þjórsárskóla hafði samband á föstudaginn og bauð okkur að koma og sjá leikritið. Lagt var af stað frá Flúðaskóla kl. 10:20 og komið til baka um klukkan 12:00.
Nú hefur verið dregið í getrauninni “Tré mánaðarins”. Réttu svörin voru birki og lerki. Úr hópi starfsmanna var dregið nafn Fríðar Sæmundsdóttir og úr hópi nemenda var dregið nafn nemanda í 3. bekk sem er Bartlomiej Lacek. Þau hlutu bæði að launum lítið box úr birki. Þessi box voru gerð úr birki úr grenndarskóginum okkar.
Aðaláhersla verður lögð á eftirfarandi í íslensku og stærðfræði:
Íslenska
Lestur
Lesskilningur
Ritun (inngangur, meginmál, lokaorð. Þ.e. kjötmikli hamborgarinn)
Stafsetning
Upplestur
Kynnast sagnorðum og lýsingarorðum
Fallbeyging nafnorða
Nútíð / þátíð
Ég hef veitt því athygli að sumir nemendanna hafa ekki lesið heima í yfir mánuð. Endilega látið nem. lesa heima.
Stærðfræði
Stórar tölur
Peningar
Neikvæðar tölur
Mínus: að fá lánað
Samlagning: að geyma
Margföldun
Klukkan
Deiling
Námundun að tug og hundraði
Mynstur
Mælingar
Hnit
Tölfræði: að telja, flokka, skrá [...]
Í dag, þriðjudag, gerðist það því miður að svokallað snjóstríð virðist hafa gengið langt yfir strikið. Í snjóstríðinu var 3. bekkur og annar eldri bekkur. Í eldri bekknum voru bæði fleiri og sterkari nemendur og fannst 3. bekk eins og það hafi þvílíkt verið vaðið yfir þá. Nemendur komu ansi heitt í hamsi inn úr [...]