Lestrarátak
Nú er að hefjast lestrarátak í 3. bekk. Það mun fara þannig fram að hver dagur mun hefjast á lestrarstund, þ.e. að nemendur lesi í hljóði í a.m.k. 10 mín, fer eftir einbeitingu og dagsformi. Stefnt verður að því á löngum dögum (þriðju- og miðvikudögum) að ná slíkri stund 2svar sinnum yfir daginn. Þeir nemendur sem styttra eru á veg komnir í lestrinum fá einfaldar bækur til að byrja með til að þeir nái einnig að einbeita sér og líða vel við lesturinn. 
Í lok lestrarstundarinnar skráir kennarinn heildar blaðsíðufjölda allra nemenda og lætur hann vera sýnilegan á vegg, bæði heildarblaðsíðufjölda dagsins og heildarblaðsíðufjölda frá upphafi átaksins.
Markmiðið með þessu er að nemendur sýni samstöðu í verki með að safna blaðsíðum saman, auka lestrarhraða, auki orðaforða og að nemendur þekki og læri að lesa stærri og stærri tölur.
Vona ég að nemendur og foreldrar/forráðamenn verði jákvæðir gagnvart þessu og að við munum sjá góðar framfarir í vor.
Kveðja, Anna Þórný
Skemmtilegt átak ;o) mikil þörf á því á þessu heimili ;o)
Kveðja Ragnheiður
Þetta hljómar mjög vel = )
kv. Jenný
Mér líst vel á þetta líka!!!
Fyrsti dagur átaksins gekk rosalega vel. Börnin eru mjög áhugasöm og voru lesnar yfir 300 blaðsíður í heildina. Algerlega frábært.