Tónlist fyrir alla

JassÞriðjudaginn 2. febrúar  fá nemendur skólans heimsókn frá Djasskvartett Reykjavíkur. Tilgangurinn með heimsókninni verður að kynna fyrir nemendum tónlist undir yfirskriftinni „Tónlist fyrir alla“. Nú er komið að djasskynningu með sannkölluðu landsliði hljóðfæraleikara, skipað þeim Sigurði Flosasyni (saxófónn), Gunnlaugi Briem trommur), Eyþóri Gunnarssyni (píanó) og Tómasi R. Einarssyni (kontrabassi).

Á tónleikunum sem þeir nefna „Ég hef taktinn“ munu þeir leggja áherslu á að djassinn er skemmtileg, fjölbreytt og aðgengileg tónlist og að færa megi hvaða tónlist sem er í djassbúning. Við getum strax látið okkur hlakka til að upplifa góða skemmtun með þessum frábæru listamönnum.


Want to Leave a Reply?

«« Frá tenglum  ∞  Lestrarátak »»