Lestrarátak

Nú er að hefjast lestrarátak í 3. bekk. Það mun fara þannig fram að hver dagur mun hefjast á lestrarstund, þ.e. að nemendur lesi í hljóði í a.m.k. 10 mín, fer eftir einbeitingu og dagsformi. Stefnt verður að því á löngum dögum (þriðju- og miðvikudögum) að ná slíkri stund 2svar sinnum yfir daginn. Þeir nemendur sem styttra eru [...]

Tónlist fyrir alla

Þriðjudaginn 2. febrúar  fá nemendur skólans heimsókn frá Djasskvartett Reykjavíkur. Tilgangurinn með heimsókninni verður að kynna fyrir nemendum tónlist undir yfirskriftinni „Tónlist fyrir alla“. Nú er komið að djasskynningu með sannkölluðu landsliði hljóðfæraleikara, skipað þeim Sigurði Flosasyni (saxófónn), Gunnlaugi Briem trommur), Eyþóri Gunnarssyni (píanó) og Tómasi R. Einarssyni (kontrabassi).
Á tónleikunum sem þeir nefna „Ég hef taktinn“ munu þeir leggja áherslu á að djassinn [...]

Frá tenglum

Sæl öllsömul
Næstkomandi miðvikudag 20. janúar verður Bingó fyrir börnin í 3.bekk og foreldra. Fjörið byrjar klukkan 17.00 til ca.18.30 Börnin mega hafa með sér gos og snakk eða nammi. Vonandi eigum við skemmtilega stund með börnunum okkar.
Bestu kveðjur Jenný og Elín (bekkjartenglar)

Dótadagur á miðvikudaginn

Ákveðið hefur verið að halda svokallaðan dótadag á miðvikudaginn, þ.e. 13. janúar. Nemendur hafa mikinn áhuga á því að koma með og sýna hvað þau fengu í jólagjöf.

Gleðilegt ár

Sæl, öllsömul og gleðilegt ár.
Þá er seinnihluti skólaársins að byrja. Vona ég að þið hafið haft eins rólegt og notalegt jólaleyfi eins og ég hef haft. Börnin voru mörg hver ansi þreytt í gær en stóðu sig með mikilli prýði í skólanum.
Nú höldum við lærdómnum áfram af jafnmiklum krafti og fyrir áramót. Nemendurnir eru allir mjög jákvæðir [...]