Jólaskemmtun 18. des

Litlu jólin verða haldin föstudaginn 18.desember í Félagsheimilinu. Skemmtunin hefst kl.9:00 og mæta nemendur þangað með skólabílum. Dansað verður kringum jólatré og munu yngsta og miðstig vera með skemmtiatriði í anda jólanna. Að skemmtun lokinni verður snæddur hátíðarmatur í matsal skólans. Heimakstur verður kl. 12:30
Þeir sem eru ekki enn búnir að skila pakka fyrir pakkaleikinn [...]

Jólakort

Flúðaskóli hefur ákveðið að setja ekki upp jólapóstkassa í skólanum. Í staðinn gerir hver bekkur plakat með jólakveðju til annarra bekkja. Nemendur geta eftir sem áður sent jólakort ef þeim sýnist svo en þau verða ekki á litlu jólunum. 
Við í 3. bekk erum búin að búa til svona sameiginlegt jólakort til allra nemenda í skólanum. Eftir [...]

Jólin, jólin, jólin koma brátt lalalalala…

Jólin nálgast og börnin verða spenntari með hverjum deginum sem líður. 
Í næstu viku ætlum við að gera okkur glaðan dag og brjóta upp dagana með ýmsum uppákomum.

Þriðjudaginn 15.desember fer yngsta stigið út í leikskóla að sjá jólaleikrit.
Miðvikudaginn 16.desember ætlum við að hafa jólaföndurhringekju á yngsta stiginu í tveimur síðustu tímunum. 
Á miðvikudaginn þurfa börnin að vera [...]