Slökkviliðið í heimsókn í eldvarnavikunni

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur gefið út myndskreytta bók um slökkviálfana Loga og Glóð og illvirkjann Brennu-Varg. Slökkviliðsmenn munu færa átta ára börnum um allt land bókina að gjöf.
Börnin fá bókina í Eldvarnaátakinu sem stendur yfir 20.-27. nóvember en þá heimsækja slökkviliðsmenn alla grunnskóla landsins.
Slökkviliðsmenn okkar sveitar koma í heimsókn í 3. bekk Flúðaskóla föstudaginn [...]

Vika 47 / 23. – 27. nóv.

Íslenska: Stafsetning, málskilningur, nafnorð, kyn nafnorða, samsett orð, ritun
Stærðfræði: Uppsett dæmi (plús og mínus), klukkan, tugatölur, námundun
Samfélagsfræði: Hænsni
Upplýsingatækni: Slökkviliðið verður í heimsókn hjá okkur í þessum tíma

Vika 46 / 16. – 20. nóv.

Íslenska: Stafsetning, málskilningur, nafnorð, andheiti
Stærðfræði: Uppsett dæmi (plús og mínus), klukkan, …
Samfélagsfræði: Hænsni
Upplýsingatækni: Lyklaborð / ritvinnsla, leikjaforrit

Undirbúningur undir samræmd próf.

Nú er að hefjast undirbúningur undir samræmd próf. Þessi vetur verður búinn áður en við vitum af og því er ekki seinna vænna en að byrja. Það er búið að flýta dagsetningunni á þessum prófum þannig að  september næstkomandi nýtist í rauninni eingöngu í upprifjun og í að læra þau atriði sem ekki tókst að fara vel í.
Ég [...]

Heimanám 12. – 17. nóv.

Lestur í 10 – 15 mín. daglega
2 bls. í plastmöppu
Viltu reyna: bls. 19 og 21 ( má líka gera bls. 20 )
Kennsluforrit vikunnar á bloggsíðu:  Í undirdjúpunum

Starfsdagur

Á morgun, miðvikudag, er starfsdagur kennara en frídagur nemenda. Þessi vika og síðasta hefur svolítið verið varin í að undirbúa og leggja fyrir námsmat. Nemendur fóru í lestrarpróf í lok síðustu viku og svo fóru þau í litla stærðfræðikönnun í dag.

Myndir frá afmælishátíð

Afmælishátíð Flúðaskóla tókst afskaplega vel að mínu mati. Létt og skemmtileg dagskrá í félagsheimilinu og margir gestir létu sjá sig í Flúðaskóla. Boðið var uppá 8 metra köku sem bragðaðist mjög vel. Myndir af nemendum 3. bekkjar eru að finna undir linknum myndir á forsíðu heimasíðunnar. Endilega lítið á þær.

Heimanám 5. – 10. nóv.

Lestur í 10 – 15 mín. daglega
2 bls. í plastmöppu
Sögubók: Saga um frímínútur. Vanda skrift og myndskreyta
Kennsluforrit vikunnar á bloggsíðu:  Þrír í röð (margföldun)

Heimsókn til félaga?

Kæru foreldrar / forráðamenn.
Af gefnu tilefni þá verð ég að biðja ykkur um að senda börnin með miða til mín ef þau eiga að fara heim með vini / bekkjarfélaga sínum. Í dag voru 2 nemendur sem sögðust vera búnir að fá leyfi frá foreldrum sínum til að fara heim með einhverjum nemanda, ég verð [...]