Ég má til með að minnast á það hversu ánægð og stolt ég er af ykkur, nemendum og foreldrum, gagnvart heimanáminu. Þegar nemendur fara í leyfi eða verða veikir þá reynir viðkomandi fjölskylda ávallt að nálgast heimanámið á einhvern hátt. Ef þeir geta ekki komið við í skólanum og tekið það þar þá er haft samband og [...]
Lestur í 10 – 15 mín. daglega
2 bls. í plastmöppu
Viltu reyna, bls. 16 og 17
Áframhald með að læra tvisvar og þrisvar sinnum töflurnar
Kennsluforrit vikunnar á bloggsíðu: Enska fyrir byrjendur
Árni Þór, sundkennari, er kominn í fæðingarorlof og verður frá næsta mánuðinn. Á meðan falla sundtímar niður, í staðinn eiga nemendur að taka með sér íþróttaföt.
Reynt verður að fjölga sundtímum nemenda í vor til að bæta upp þá tíma sem falla niður núna.
Flúðaskóli er 80 ára um þessar mundir, því verður blásið til afmælisfagnaðar föstudaginn 30. október. Afmælið hefst kl. 12:30 með hátíðardagskrá í Félagsheimilinu þar sem fram koma fyrrverandi og núverandi nemendur Flúðaskóla. Að því loknu verður gestum boðið að skoða skólann þar sem til sýnis verða margvísleg verkefni nemenda. Nemendur 3. bekkjar eru að útbúa bók / hefti [...]
Eins og allir vita þá er vetrarfrí föstudag 23. okt. og mánudaginn 26. okt. Löng helgi því framundan. Hafið það gott í vetrarfríinu. Kveðja, Anna Þórný
Lestur í 10 – 15 mín. daglega
2 bls. í plastmöppu
Viltu reyna, bls. 12 og 14 (sleppa bls. 13)
Kennsluforrit vikunnar á bloggsíðu: Samlagning – púsl.
Nemendur þurfa að fá 5 rétt rétt svör til að losna við 1 púsl úr púsluspilinu
Nú er komið að því að börnin læri margföldunartöfluna. Við byrjum á 2. sinnum og 3. sinnum [...]
Íslenska: Ritun, lestur, leikur að orðum, vinnum verkefni sem tengist 80 ára afmæli skólans
Stærðfræði: Meiri margföldun( 2*, 3*, 4* og 5* taflan), stórar tölur
Samfélagsfræði: Vinnum í verkefnum tengdum 80 ára afmæli skólans
Enska: Að kynna sig og spyrja aðra um nafn. Spyrja og svara um líðan fólks (how are you - thank you, I´m fine)
Heimilisfræði: Hvaða [...]
Því miður ber aðeins á því að nemendur fái litla aðstoð við heimanám sitt eða að það sé lítið fylgst með þeim á meðan þeir eru að vinna heimanámið. Það vill stundum verða til þess að þeir misskilji fyrirmæli og vinni það því á rangan hátt og að nemendur skili heimanáminu illa unnu. Þá er [...]
Íslenska: Ritun, lestur og leikur að orðum
Stærðfræði: Margföldun, samlagning og byrjum aðeins á ummáli
Samfélagsfræði: Áfram vinnum við með hundinn
Enska: Að kynna sig og spyrja aðra um nafn (sjá um ensku undir tenglinum námið)
Upplýsingartækni: Unnið í Word og kennsluforritum
Myndmennt: Verkefni sem tengjast haustinu
Smíði: Nem. smíða spil að eigin vali
Handmennt: Veggteppi og prjón fyrir þá sem ráða [...]
Lestur í 10 – 15 mín. daglega
2 bls. í plastmöppu
Saga um fjöruferð
Gefa sögunni nafn
Vanda skriftina
Myndskreyta (má prenta út mynd frá ferðinni og líma inn(sjá heimasíðu skólans))