Vorhátíð

Posted in Dagbókin on maí 27th, 2010 by Anna Þórný — Be the first to comment!

Á morgun, föstudag, er vorhátíð í skóginum. Allir mæta í skrautlegum fötum og við höldum hátíð í skóginum.  Mæting kl. 10:30 og heimferð kl.  12:30.

Myndir frá vorferðinni eru komnar á heimasíðu skólans. Endilega kíkið á þær.

DVD-diskur og Árbókin 2010

Posted in Dagbókin on maí 21st, 2010 by Anna Þórný — Be the first to comment!

Ég vil minna ykkur á að í lok skólaársins verður til sölu bæði DVD-diskur með árshátíðinni (diskó) og Árbókin 2010. Diskurinn er seldur á 1000 kr og Árbókin hefur verið seld á 500 krónur. Þetta eru bæði mjög eigulegir hlutir, börnin hafa gaman af að fletta þessu / skoða þetta og rifja upp.

Vorferð, 26. maí

Posted in Dagbókin on maí 20th, 2010 by Anna Þórný — Be the first to comment!

Vorferð yngsta stigs

Miðvikudaginn 26.maí 2010

 

Tungufell og Tungufellsdalur.

Við förum frá skólanum að morgni með rútu að Tungufelli. Þar ætlar hún Elín Jóna að taka á móti okkur og sýna okkur búið og Tungufellskirkju.

Eftir skoðunarferðina fáum við okkur hressingu áður en við keyrum inn í Tungufellsdalinn. Þar ætlum við að ganga upp í Svartagljúfur og sjá m.a. fossinn sem fellur þar í gljúfrinu.

Við röltum okkur síðan til baka og hjá safngerðinu ætlum við að grilla pylsur og leika okkur saman. Það verður örugglega mjög freistandi að vaða í ánni

 

Það sem þarf að hafa meðferðis:

 

- nesti til að borða í Tungufelli. Leyfilegt er að hafa sætt nesti með (t.d.

  snúða og kex) og safa. Ekki er leyfilegt að vera með gosdrykki og sælgæti

- vatnsbrúsa fyrir gönguferðina

- föt við hæfi, fer eftir veðrinu

- aukasokka og jafnvel föt ef maður skyldi blotna við að vaða

- dót til að leika með t.d. bolti, frisbee o.þ.h.

- spariskapið

 

Brottför verður um kl:9.00 og heimkoma um 15.00, þannig að þetta er allur dagurinn sem fer í ferðina.

 

 

Kærar kveðjur

Halla, Anna Þórný, Sjöfn

Tungufellsdalur

Posted in Dagbókin on maí 17th, 2010 by Anna Þórný — Be the first to comment!

Miðvikudaginn 26. maí mun yngsta stig Flúðaskóla fara í vorferð í Tungufellsdal. 

  • Vorferð verður farin í Tungufellsdal.  Ella Jóna ætlar að taka á móti okkur og sýna okkur ýmislegt m.a. kirkjuna, fjósið, fiskeldið og lóðsa okkur inn í Svartárgljúfur og skoða fossinn. Grillaðar verða pylsur, farið í leiki og sullað í læknum.

Flott skákmót

Posted in Dagbókin on apríl 29th, 2010 by Anna Þórný — Be the first to comment!

Nemendurnir í 3. bekk stóðu sig afar vel á skákmótinu. Mjög góð þátttaka var í 3. bekk. Alls kepptu 10 nemendur af 14 barna hópi sem er aldeilis frábært. Öllum nemendum var boðið upp á vöfflur að hætti Halldórs, með rabbabarasultu, rjóma og súkkulaðiglassúr.

Fleiri myndir er að finna á aðalsíðu Flúðaskóla undir linknum myndir og svo skák. Ásamt þeim eru ýmsar aðrar myndir af okkar börnum þar að finna.

Ný söngstund

Posted in Dagbókin on apríl 26th, 2010 by Anna Þórný — Be the first to comment!

Á föstudaginn héldum við yngsta stigið aðra söngstund. Rifjuðum við upp lögin frá fyrri viku og sungum ný eins og t.d. Ef þú giftist. Kom svo Loftur Erlingsson óvænt til okkar til að sækja nemendur. Gripum við hann glóðvolgan og fengum hann til að syngja fyrir okkur litla aríu sem og hann gerði. Áður en hann hóf sönginn sagði hann okkur líka litla sögu um flautuleikara sem gat fryst heiminn með flautuleik sínum. Krakkarnir voru náttúrlega alveg heilluð og stækkuðu augu margra þegar hann byrjaði að syngja. Takk, Loftur.

Skákmót

Posted in Dagbókin on apríl 21st, 2010 by Anna Þórný — Be the first to comment!

Í næstu viku verður Halldórsskákmótið haldið. Stór hluti bekkjarins er búinn að skrá sig og munum við í 3. bekk því eyða svolitlum tíma til að æfa okkur í skák fram að því.

Söngstund

Posted in Dagbókin on apríl 13th, 2010 by Anna Þórný — 1 Comment so far

songsalurÍ morgun komu krakkar og kennarar á yngsta stigi saman í Kvíadal og sungu nokkur lög við undirspil Önnu Þórnýjar. Það er gaman að því hvað kennarar eru duglegir við að brjóta upp kennsluna, það þarf ekki að vera flókið eins og það að koma saman og syngja. Sungin voru lögin Með sól í hjarta, Lóan er komin, Kátir voru karlar og Úti um mela og móa.

Generalprufa

Posted in Dagbókin on mars 23rd, 2010 by Anna Þórný — Be the first to comment!

Generalprufa árshátíðar yngsta stigs verður á fimmtudagsmorguninn og verður elsta stigi skólans boðið ásamt nemendum Þjórsárskóla. Nemendur þurfa því að koma með diskófatnað sinn á morgun, miðvikudag eða á fimmtudaginn. Þeir verða með blá eða bleik ennisbönd (eigið val) sem þeir fá í skólanum.

Árshátíð Flúðaskóla 2010

Posted in Dagbókin on mars 22nd, 2010 by Anna Þórný — Be the first to comment!

Fyrirkomulag árshátíðar verður með breyttu sniði þetta árið, sjá dagskrá hér fyrir neðan.

Fimmtudagur 25. mars kl. 19.00 – 23.00

Árshátíð elsta stigs ásamt starfsmönnum, 7. bekkingum í Flúðaskóla og Þjórsárskóla boðið að vera með. Hóflegur aðgangseyrir, nánar auglýst síðar.

  • fordrykkur og móttaka
  • borðhald
  • kennara- og starfsmannagrín
  • diskótek

Föstudagur 26. mars kl. 12.30 – 14.30

Árshátíð yngsta stigs og miðstigs.

Allir eru velkomnir á sýninguna; mamma, pabbi, amma, afi, systkini, frændur, frænkur og bara allir sem hafa gaman af að sjá ungt fólk í leik og starfi.

  • atriði á sviði
  • diskótek

Föstudagur 26. mars kl. 20.00

Sýningin „Diskó er málið“ þar sem nemendur í 7. – 9. bekk leika og dansa diskó eins og þeim einum er lagið. Verkið er samið af nemendum sjálfum með aðstoð kennara og dansara.

Allir eru velkomnir á sýninguna; mamma, pabbi, amma, afi, systkini, frændur, frænkur og bara allir sem hafa gaman af að sjá ungt fólk í leik og starfi.

Ætlast er til að allir nemendur í 8. – 10. bekk mæti þar sem þetta telst sem skóladagur.

Aðgangur ókeypis fyrir nemendur Flúðaskóla, hóflegur aðgangseyrir fyrir aðra, nánar auglýst síðar.

Boðið er upp á akstur fyrir nemendur á allar skemmtanirnar

Athugið að mánudaginn 29. mars hefst páskafrí.
Skóli hefst að nýju þriðjudaginn 6. apríl.