Fjöruferð

Skrifað 2. October, 2009 af sjofn

Fjöruferðin okkar gekk vel. Sól og blíða og allir í góðu skapi. Krakkarnir voru mjög dugleg að finna hin ýmsu fjörudýr. Það var gaman að fylgjast með hve vel náttúrugreindin naut sín. Þegar heim kom fengu þau greiningalykla til að finna út hvað lífverurnar hétu sem þau komu með heim. Upp úr fötunum komu m.a. bogakrabbi, marflær, beitukóngar, kræklingar, hreisturbakur og blöðruþang. Við vinnum svo verkefni um ferðina og lífverurnar í náttúrufræðitíma.

Heimavinna 1.-8. október

Skrifað 1. October, 2009 af sjofn

Heimanám 4. Bekkur
1. - 8. október

Listamaður vikunnar er Eva María: sjá ljósrit af mynd í stílabók

Umsjónarmenn: Gabríel Logi og Halldór Fjalar

Heimanám:
Skiladagar á heimanámi í vetur er á fimmtudögum (einnig stærðfræði).
Heimanám vikunnar er:
Lestur á hverjum degi. 2 blaðsíður í Málfræði, æfingabókin mín. Saga um fjöruferðina í stílabókina. Ljósrit í stærðfræðimöppunni.
Í skólanum þessa viku:

• Vinna með orð og orðtök sem tengjast sjónum og fjörunni
• Vinnum verkefni um fjöruna
• Vinnum í íslenskubókum og lærum um deilingu í stærðfræði
• Sköpum eitthvað skemmtilegt í verkstæði.
• Í smiðju æfum við okkur í slökun, tjáningu og tónlist.
• Förum á bókasafnið og fáum okkur skemmtilegar bækur

Spakmæli vikunnar: Að fara á fjörurnar við einhvern

Mál og hreyfiþjálfun

Skrifað 29. September, 2009 af sjofn

Til foreldra nemenda í 3. og 4. bekk.
Í vetur fá nemendur í 1.-4. bekk að fara í mál og hreyfiþjálfun. Markmiðið með henni er að nemendur :
- efli jafnvægi
- styrki samhæfingu og þjálfi takttilfinningu
- þjálfi víxlhreyfingar og krossun
- þjálfi boltameðferð
- efli einbeitingu og hlustun
- þjálfi skipulagða frásögn
- efli færni í samskiptum.

Kennd er ein kennslustund á viku. Kennslustund í mál-og hreyfiþjálfun skiptist í þrjár lotur:
Fyrsta lota fer fram á mottum, þar er sögð stutt saga sem nemendur eiga að muna og hún er rifjuð upp að viku liðinni.
Önnur lota felur í sér fjölbreytta hreyfingu með margvíslegum æfingum á stöðvum.
Í þriðju lotu er komið saman á mottum í lok tíma, áhersla lögð á frásögn nemenda.

Ég hef haft mjög gaman af að taka þátt í þessu verkefni. Krakkarnir eru skemmtilegir, skapandi og leggja sig fram við vinnu sína.

Kveðja Margrét

Steinunn Margrét Larsen
Flúðaskóli
sent úr Mentor.is

Haustferð

Skrifað 26. September, 2009 af sjofn

Haustferð yngsta stigs

Miðvikudaginn 30.september 2009

Fjöruferð í Stokkseyrarfjöru.

Förum frá skólanum að morgni með rútu til Stokkseyrar. Skoðum fjöruna og finnum vonandi mörg falleg gull í fjörunni. Leikum okkur og höfum gaman.

Fáum okkur hressingu þar.

Höldum síðan til Þorlákshafnar og förum á bókasafnið þar sem við getum séð m.a. uppstoppaða fiska. Á eftir förum við í félagsmiðstöðina og fáum okkur nesti frá mötuneytinu áður en haldið er heim á leið aftur.

Það sem þarf að hafa meðferðis:

- nesti til að borða í fjörunni á Stokkseyri. Leyfilegt að hafa sætt nesti með (t.d.

snúða og kex) og safa. Ekki er leyfilegt að vera með gosdrykki og sælgæti

- litla fötu með loki til að safna í (ekki nauðsynlegt)

- föt við hæfi

- stígvél

- vatnsgallinn

- spariskapið

Brottför um kl:9.00 og heimkoma um 15.00, þannig að þetta er allur dagurinn sem fer í ferðina.

Kærar kveðjur

Halla, Anna Þórný, Sjöfn

Jóka

Skrifað 26. September, 2009 af sjofn

Ágætu foreldrar/forráðamenn.
Ég kenni börnunum ykkar krakkajóga í smiðju í vetur. Þau koma til mín í 6 – 11 manna hópum, þannig að auðvelt er að sinna hverjum og einum vel. Ég er lærður jógakennari og í þessari lotu styðst ég við bók sem heitir Snerting, jóga og slökun. Bókartitillinn gefur til kynna við hvað við erum að fást, en inn í þetta fléttast ótal margt fleira. Auk hefðbundinna jógaæfinga, sem eru bæði liðkandi og styrkjandi fyrir líkamann, er farið í ýmsa leiki þar sem gleðin er við völd ( ekki þó ærslagangur ). Þar komum við inn á samvinnu, traust, snertingu, læra að gefa og þiggja og fleira.Ég kenni þeim líka að slaka á, láta ekki utanaðkomandi áreiti trufla sig og hlusta á eigin líkama. Þetta reynist þeim misauðvelt og sumir hafa mikla þörf fyrir að tjá sig um það sem upp í hugann kemur. Í jóga vinnum við líka með jafnvægi og einbeitingu.
Ég legg áherslu á að tímarnir eigi að vera rólegir og notalegir og nemendurnir beri virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum. Hjálpumst að við að gera samveruna notalega og erum góð hvert við annað. Ekki má gleyma nuddinu góða. Þá eru þau 2 og 2 saman og skiptast á að nudda hvort annað. Leyfið þeim endilega að kenna ykkur þetta heima, það getur verið góð og gefandi stund fyrir bæði ykkur og börnin. Gangi ykkur vel.
Börnin ykkar mættu jákvæð og glöð til leiks í haust og það var gaman að sjá eftirvæntinguna og gleðiglampann í augum margra þeirra. Ég hlakka til að starfa áfram með þeim.
Ef þið eruð með einhverjar spurningar eða viljið spjalla hafið þið endilega samband í s. 4806610 eða á alla@fludaskoli.is

Samræmdu prófin

Skrifað 16. September, 2009 af sjofn

Sæl veriði. Á morgun verður samræmt próf í íslensku og á föstudag í stærðfræði. Gott væri að börnin kæmu vel hvíld og búin að borða morgunmat þegar þau koma í skólann. Þau mega hafa með sér eitthvert lesefni s.s. blöð eða bækur ef þau verða fyrr að klára verkefnið. Bestu kveðjur Sjöfn

Heimavinna

Skrifað 8. September, 2009 af sjofn

Sæl öll. Þessa vikuna vinnum við í heimavinnu tvö blöð í íslensku sem eru æfingar fyrir samræmd próf sem verða í næstu viku á fimmtudag og föstudag. Einnig skrifum við sögu. Nauðsynlegt er að sagan hafi nafn og hafi upphaf, miðkafla og lokaorð. Hálf til ein blaðsíða nægja. Við tökum okkur svo pásu frá hefðbundnu námi á föstudaginn, réttardaginn.

Velkomin í skólann

Skrifað 26. August, 2009 af sjofn

Sæl öll , þessi bloggsíða er til þess ætluð að hafa góð samskipti á milli heimila og skóla.  Forsenda fyrir því  að vel gangi er gott samband á milli okkar.  Ég sendi heimavinnuáætlunina í dag en þau þurfa ekki að skila fyrr en á fimmtudag eftir viku.  Best er að vinna eitthvað daglega í stað þess að geyma allt fram á síðasta dag.  Börnin verða töluvert úti í næstu viku þá er útikennsluvika í skólanum og er því gott að þau komi klædd eftir veðri.

Hello world!

Skrifað 1. July, 2009 af Ella Jóna

Welcome to Bloggsíða Flúðaskóla. This is your first post. Edit or delete it, then start blogging!