Archive for the ‘Uncategorized’ category

Bekkjarkvöld

April 30th, 2010

Fyrirhugað er að vera með bekkjarkvöld á þriðjudagskvöldið milli 19:30 og 21:00.
Foreldrar eru velkomnir.

Útikennsla

April 26th, 2010

4. bekkur er að læra um víkinga í samfélagsfræðinni. Við verðum nær eingöngu í skóginum til vors og verðum í margvíslegum skapandi verkefnum tengdum víkingunum. Ætlunin er að halda þing í skóginum í vor og bjóða foreldrum og þeim sem hafa áhuga að koma á þingið. Á þinginu eru samin lög og [...]

Heimavinna

January 6th, 2010

Heimanám 4. bekkur
7. – 14. janúar 2010
mörsugur
Listamaður vikunnar er: Orri
Umsjónarmenn: Sunneva Sól og Þórný Vaka
Heimanám:
Skiladagar á heimanámi í vetur er á fimmtudögum (einnig stærðfræði).
Heimanám vikunnar er:
 Lestur á hverjum degi, verkefnablöð í íslensku
 Í skólanum þessa viku:
• Vinnum í íslenskubókum, Ritrún, Ás, Tvistur, Græni blýanturinn
• Lærum um íslenska þjóðhætti þar sem fjallað er [...]

Gleðilegt ár

January 6th, 2010

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla. Nú er skólinn byrjaður eftir jólafrí. Börnin eru hress og kát að vanda og tilbúin að takast á við nýtt ár með spennandi verkefnum. Þau fá heimanám með sér heim á föstudag og vil ég minna á nauðsyn þess að vinna heimavinnuna. Þó [...]

Bráðum koma blessuð jólin

December 11th, 2009

Jólin, jólin, jólin koma brátt lalalalala…
Kæru foreldrar
Jólin nálgast og börnin verða spenntari með hverjum deginum sem líður. Við erum búin að nota síðustu daga til að skreyta stofuna okkar og hengja upp jólaseríur. Í næstu viku ætlum við að gera okkur glaðan dag og brjóta upp daginn með ýmsum uppákomum
o Þriðjudaginn 15.desember fer yngsta stigið út [...]

Dagur íslenskrar tungu

November 13th, 2009

Sæl, dagur íslenskrar tungu er á mánudaginn, 16. nóv., Þá verða börnin lengur í skólanum og verðum við með skógarvinnu í skóginum eftir hádegi. Nauðsynlegt er að börnin komi hlýlega klædd í skólann. Kveðja Sjöfn.

Heimanám

November 9th, 2009

Heimanám 4. bekkur
6. nóvember- 12. nóvember
Gormánuður
Listamaður vikunnar er: Vitaliy
Umsjónarmenn: Birgit Ósk og Filip Jan
Heimanám:
Skiladagar á heimanámi í vetur er á fimmtudögum (einnig stærðfræði).
Heimanám vikunnar er:
Lestur á hverjum degi. 2 blaðsíður í Málfræði. Stafsetningaræfing sem á að skrifa í rauðu stílabókina.
Í skólanum þessa viku:
• Vinnum í íslenskubókum og lærum [...]

Stafsdagur

November 9th, 2009

Nú er komið að annarskilum, engir formlegir námsmatsdagar eru hjá nemendum því námsmat er alltaf í gangi eða það sem kallað er símat. Næstkomandi miðvikudag, 11. nóvember, er starfsdagur og þá er ekki skóli hjá nemendum. Nemendur fá vitnisburð með sér heim miðvikudaginn 18. nóvember.

Afmælishátíð skólans

October 28th, 2009

Á föstudag ætlum við að halda upp á 80 ára afmæli skólans. Börnin mæta eins og vanalega í skólann og fyrir hádegi verður hefðbundinn skóladagur en með hressingu í hádeginu. Um kl. 12:30 göngum við yfir í Félagsheimilið og þar verður hátíðardagskrá. Á eftir er öllum boðið í skólann m.a. til að skoða [...]

Vetrarfrí

October 22nd, 2009

Vetrarfrí verður í skólanum á morgun, föstudag og á mánudaginn.
Heimanám 4. Bekkur
27.-29. október
Listamaður vikunnar er: Hörður Freyr
Umsjónarmenn: Orri og Steinar Þór
Heimanám:
Skiladagar á heimanámi í vetur er á fimmtudögum (einnig stærðfræði).
Heimanám vikunnar er:
Lestur á hverjum degi. Læra fyrsta erindið í ljóðinu. Efst á Arnarvantshæðum, 2. erindi eftir Jónas Hallgrímsson. [...]