Bekkjarkvöld

Skrifað 30. April, 2010 af sjofn

Fyrirhugað er að vera með bekkjarkvöld á þriðjudagskvöldið milli 19:30 og 21:00.
Foreldrar eru velkomnir.

Útikennsla

Skrifað 26. April, 2010 af sjofn

4. bekkur er að læra um víkinga í samfélagsfræðinni. Við verðum nær eingöngu í skóginum til vors og verðum í margvíslegum skapandi verkefnum tengdum víkingunum. Ætlunin er að halda þing í skóginum í vor og bjóða foreldrum og þeim sem hafa áhuga að koma á þingið. Á þinginu eru samin lög og reglur fyrir víkingana, byggð skýli, samdar rímur, fléttuð belti og vinabönd og búnir til skemmtilegir leikir að hætti víkinga. Þegar við komum inn þá skrifum við í dagbækur hvað var verið að gera og hvernig gekk að vinna saman.
Ég vil minna á heimavinnuna og mikilvægi þess að lesa heima. Þessa vikuna eru verkefnablöð í möppunni þeirra sem þau skila á fimmtudaginn. Bestu kveðjur Sjöfn.

Heimavinna

Skrifað 6. January, 2010 af sjofn

Heimanám 4. bekkur
7. – 14. janúar 2010
mörsugur

Listamaður vikunnar er: Orri

Umsjónarmenn: Sunneva Sól og Þórný Vaka
Heimanám:
Skiladagar á heimanámi í vetur er á fimmtudögum (einnig stærðfræði).
Heimanám vikunnar er:
 Lestur á hverjum degi, verkefnablöð í íslensku

 Í skólanum þessa viku:

• Vinnum í íslenskubókum, Ritrún, Ás, Tvistur, Græni blýanturinn
• Lærum um íslenska þjóðhætti þar sem fjallað er m.a. um mörsugur
• Spjöllum um álfa og syngjum Álfareiðin eftir Jónas Hallgrímsson
• Förum inn í Kvenfélagsskóg á þrettándanum
• sköpum eitthvað skemmtilegt í verkstæði
• í smiðju æfum við okkur í slökun, tjáningu og tónlist.
• Við ræðum um vináttu og kurteisi og fáum hrós dagsins.
• Lærum um deilingu í stærðfræði

Spakmæli vikunnar: Blessun vex með barni hverju

Gleðilegt ár

Skrifað 6. January, 2010 af sjofn

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla. Nú er skólinn byrjaður eftir jólafrí. Börnin eru hress og kát að vanda og tilbúin að takast á við nýtt ár með spennandi verkefnum. Þau fá heimanám með sér heim á föstudag og vil ég minna á nauðsyn þess að vinna heimavinnuna. Þó að börn séu orðin vel læs er nauðsynlegt að halda áfram að lesa heima því að æfingin skapar meistarann. Með lestri auka þau orðaforða sinn og lesskilning. Með von um gott samstarf, kveðja Sjöfn.

Bráðum koma blessuð jólin

Skrifað 11. December, 2009 af sjofn

Jólin, jólin, jólin koma brátt lalalalala…
Kæru foreldrar
Jólin nálgast og börnin verða spenntari með hverjum deginum sem líður. Við erum búin að nota síðustu daga til að skreyta stofuna okkar og hengja upp jólaseríur. Í næstu viku ætlum við að gera okkur glaðan dag og brjóta upp daginn með ýmsum uppákomum
o Þriðjudaginn 15.desember fer yngsta stigið út í leikskóla að sjá jólaleikrit.
o Miðvikudaginn 16.desember ætlum við að hafa jólaföndurhringekju á yngsta stiginu í tveimur síðustu tímunum. Foreldrar eru velkomnir með.
o Fimmtudaginn 17.desember er smákökunesti. Börnin mega hafa með sér smákökur í nesti. Það eru vinsamleg tilmæli að börnin komi ekki með smákökur sem innihalda hnetur vegna slæms ofnæmis hjá nokkrum börnum.
o Okkur langar líka að minnast á nokkur atriði fyrir Litlu jólin sem eru föstudaginn 18.desember kl:9.00-12.30.
1. Það eru skólabílar þennan dag.
2. Börnin komi með pakka sem kostar innan við 500kr. fyrir pakkaruglið okkar. Best væri ef pakkinn er kominn fyrir föstudaginn.
3. Koma með kerti til að hafa á stofujólunum.
4. Litla tösku undir jólapakkann.
5. Mæta í betri fötunum með jólaskapið.
Með kærri jólakveðju: Anna Þórný, Halla og Sjöfn

Dagur íslenskrar tungu

Skrifað 13. November, 2009 af sjofn

Sæl, dagur íslenskrar tungu er á mánudaginn, 16. nóv., Þá verða börnin lengur í skólanum og verðum við með skógarvinnu í skóginum eftir hádegi. Nauðsynlegt er að börnin komi hlýlega klædd í skólann. Kveðja Sjöfn.

Heimanám

Skrifað 9. November, 2009 af sjofn

Heimanám 4. bekkur
6. nóvember- 12. nóvember
Gormánuður

Listamaður vikunnar er: Vitaliy

Umsjónarmenn: Birgit Ósk og Filip Jan

Heimanám:
Skiladagar á heimanámi í vetur er á fimmtudögum (einnig stærðfræði).
Heimanám vikunnar er:
Lestur á hverjum degi. 2 blaðsíður í Málfræði. Stafsetningaræfing sem á að skrifa í rauðu stílabókina.
Í skólanum þessa viku:

• Vinnum í íslenskubókum og lærum um deilingu og fl. í stærðfræði
• Lestrarkönnun og könnun í stafsetningu.
• Sköpum eitthvað skemmtilegt í verkstæði.
• Í smiðju æfum við okkur í slökun, tjáningu og tónlist.
• Lærum um grænukornin í náttúrufræðinni.
• Við skoðum íslenska þjóðhætti í samfélagsfræðinni.
• Búum til nafnorðatré.
• Við ræðum um vináttu og kurteisi og fáum hrós dagsins.

Spakmæli vikunnar: Allir brosa á sama tungumáli

Stafsdagur

Skrifað 9. November, 2009 af sjofn

Nú er komið að annarskilum, engir formlegir námsmatsdagar eru hjá nemendum því námsmat er alltaf í gangi eða það sem kallað er símat. Næstkomandi miðvikudag, 11. nóvember, er starfsdagur og þá er ekki skóli hjá nemendum. Nemendur fá vitnisburð með sér heim miðvikudaginn 18. nóvember.

Afmælishátíð skólans

Skrifað 28. October, 2009 af sjofn

Á föstudag ætlum við að halda upp á 80 ára afmæli skólans. Börnin mæta eins og vanalega í skólann og fyrir hádegi verður hefðbundinn skóladagur en með hressingu í hádeginu. Um kl. 12:30 göngum við yfir í Félagsheimilið og þar verður hátíðardagskrá. Á eftir er öllum boðið í skólann m.a. til að skoða verk nemenda og þar verður boðið upp á afmæliskaffi. Heimferð verður kl. 15:00

Vetrarfrí

Skrifað 22. October, 2009 af sjofn

Vetrarfrí verður í skólanum á morgun, föstudag og á mánudaginn.

Heimanám 4. Bekkur
27.-29. október

Listamaður vikunnar er: Hörður Freyr

Umsjónarmenn: Orri og Steinar Þór

Heimanám:
Skiladagar á heimanámi í vetur er á fimmtudögum (einnig stærðfræði).
Heimanám vikunnar er:
Lestur á hverjum degi. Læra fyrsta erindið í ljóðinu. Efst á Arnarvantshæðum, 2. erindi eftir Jónas Hallgrímsson. 1 blaðsíða í Málfræði.
Í skólanum þessa viku:

• Vinnum í íslenskubókum og lærum um deilingu í stærðfræði
• Sköpum eitthvað skemmtilegt í verkstæði.
• Í smiðju æfum við okkur í slökun, tjáningu og tónlist.
• Lærum um hringrásir í náttúrufræðinni.
• Við skoðum íslenska þjóðhætti í samfélagsfræðinni.
• Við búum til bækur í tilefni afmæli skólans.

Spakmæli vikunnar: Enginn verður óbarinn biskup.