Jæja þá er lokaönn skólaársins byrjuð. Mér minnst tíminn fljúga frá okkur alltof hratt. Næsta fimmtudag ætla krakkarnir að bjóða foreldrum í heimsókn í stofuna okkar og horfa á kynningu á því sem við höfum verið að vinna að í samfélagsfræði. Ferðin í Þjórsárdalinn gekk mjög vel og allir komu glaðir og sælir heim eftir því sem ég best veit. Krakkarnir fengu að horfa á myndband í dag, þau hafa staðið sig mjög vel undanfarið og þetta er svona smá umbun, mynd og popp = ).
janúar 8th, 2010 kveðja frá ejnar og viktor
í þessari viku fór skólinn út í skóg að syngja þrettánda lög og bekkurin fór út í fótbolta í gær. Núna erum við að taka niður jólaskrautið.
Góða helgi Viktor og Einar
desember 16th, 2009 Jóli eru að koma : )
Jæja þá styttist óðfluga í jólin. Á morgun fimmtudaginn 17. desember er smákökudagur og þá er öllum velkomið að koma með smákökur og safa í nesti. Litlu jólin eru föstudaginn 18.desember kl:9.00-12.30. Börnin eru beðin um að koma með pakka sem kostar innan við 500kr. fyrir pakkaruglið okkar. Best væri ef þau gætu komið með pakkann á morgun.
Bestu kveðjur Jenný<!– –>
desember 4th, 2009 Jóla föstudagurinn
Í dag vorum við að skreyta stofuna notuðum seriur til að skreyta og máluðum jólasveina,jólatré og margt fleyra á gluggana og .. Við tókum til í stofuni . Við hlökkum öll til jólana . kveðja Óskar og Aníta ,,,
góða helgi
nóvember 27th, 2009 Þórdís Jóna og Ragnheiður Björk blogga = )
Í íslensku vorum við að föndra kerti og skrifuðum inní þau Hlutlægorð og Huglægorð. Í Stærðfræði settum við markmið. Svo er brunaæfing á eftir. Í nýsköpun erum við að búa til handföng á skáp. Svo í Tónment erum við að fara að syngja á Aðventuhátíðinni við ætlum að syngja Meiri snjó. Í íþróttum fórum við í fyrsta skipti í Píp-Test. Svo er Árni að koma svo við förum í sund næst Mánudag. Við skiptum svo í Verkstæði.Í ensku var Magg að lesa og við áttum að teikna það upp. Svo á Ejnar afmæli á Sunudaginn. !!!
Góða Helgi =)
Kveðja
Þórdís Jóna og Ragnheiður Björk =)
