Posted by hallas on des. 9, 2009 in
Uncategorized
Jæja þá ætla ég að blogga aðeins enda komin tími til.
Þá styttist í litlu jólin og jólafríið. Litlu jólin eru 18. desember og verða með hefðbundnum hætti. Nemendur verða með atriði þar sem þeir ætla að syngja og við byrjum að æfa á fullu í næstu viku og notum eitthvað af stærðfræðitímunum og náttúrufræðitímunum til [...]
Posted by hallas on nóv. 2, 2009 in
Uncategorized
Þá styttist í að fyrstu önninni sé senn lokið. Tíminn líður ótrúlega hratt og það styttist í jólin.
Nemendur hafa nú lokið uppskriftarbókinni sinni og ætla að selja hana á 400 kr. stykkið. Í bókinni eru líka skemmtilegar þrautir þannig að á meðan beðið er eftir að bakan bakist eða maturinn eldist er hægt að vinna [...]
Posted by hallas on okt. 20, 2009 in
Uncategorized
Vikan hefur gengið vel hjá okkur. Í stærðfræði erum við að læra um almenn brot, tugabrot og prósentur og mér sýnist það ganga nokkuð vel.
Ég minni á að á föstudag byrjar vetrarfríið og nemendur mæta aftur í skólann á þriðjudag, þ.e. 27. október.
Posted by hallas on okt. 16, 2009 in
Uncategorized
Það hefur verið nóg að snúast hjá okkur í 7. bekk.
Síðastliðinn þriðjudag fórum við í menningarferði til Reykjavíkur þar sem við fórum í Þjóðmenningarhúsið og í Þjóðminjasafnið. Allir voru áhugasamir og til fyrirmyndar í alla staði. Ferðin endaði á því að allir fóru að skauta í Egilshöllinni og allir skemmtu sér vel.
Við erum að vinna [...]
Posted by hallas on okt. 8, 2009 in
Uncategorized
Á morgun er könnun úr efninu um ummál og flatarmál.
Í næstu viku byrjum við að læra um almenn brot, tugabrot og prósentur og á mánudag fá nemendur lista yfir þau dæmi sem þarf að reikna í þessari lotu. Lotunni lýkur með könnun úr efninu fimmtudaginn 22. október.
Posted by hallas on okt. 6, 2009 in
Uncategorized
Í stærðfræði höfum við verið að læra um ummál og flatarmál. Við mældum ummál og flatarmál fótboltavallarins og sandkassans og svo til gamans mældum við rúmmál sandkassans. Nemendur fengu hefti og dæmi í bókum sem tengist efninu og það hefur gengið vel en einhverjir þurfa þó að vinna heima til þess að vera búnir fyrir [...]
Posted by hallas on sept. 21, 2009 in
Uncategorized
Þá er samræmdum prófum lokið hjá nemendum og lífið farið að ganga sinn vanagang hér í skólanum.
Við ræddum það í lífsleikni í dag hvort við ættum að vera með fjársöfnun fyrir bekkinn svo við gætum kannski endurtekið bekkjarferð eins og farin var í fyrra vor. Reyndar var sú ferð mikið til tenglum að þakka þar sem þeir [...]
Posted by hallas on sept. 16, 2009 in
Uncategorized
Við erum búin að vera að rifja upp í stærðfræðinni og hafa nemendur fengið æfingarhefti til þess. Eins og allir vita eru samræmd próf á morgun og á föstudag og gott er að vera vel hvíldur fyrir þau þar sem prófin taka þrjár klukkustundir.
Posted by hallas on sept. 2, 2009 in
Uncategorized
Í stærðfræði í dag fórum við yfir könnun sem nemendur gerðu í síðustu viku. Við erum aðallega í upprifjun þessa dagana og æfum okkur fyrir samræmd próf sem verða vikuna eftir réttir.
Posted by hallas on sept. 2, 2009 in
Uncategorized
Þá ætlum við loks að byrja á blogginu okkar. Hér skrái ég inn það sem er að gerast í skólanum, hjá bekknum og fjalla um áherslur hverju sinni í náminu þeirra. Hlakka til samstarfsins.