9. desember – það sem framundan er
Posted by hallas on des. 9, 2009 in Uncategorized |
Jæja þá ætla ég að blogga aðeins enda komin tími til.
Þá styttist í litlu jólin og jólafríið. Litlu jólin eru 18. desember og verða með hefðbundnum hætti. Nemendur verða með atriði þar sem þeir ætla að syngja og við byrjum að æfa á fullu í næstu viku og notum eitthvað af stærðfræðitímunum og náttúrufræðitímunum til þess.
Við ætlum að hafa pakkaleik og allir þurfa að koma með eitthvað til þess að gefa en passa að stilla verði í hóf. Ég vil endilega að nemendur komi með kerti til að hafa inni í stofu því það gerir allt svo hátíðlegt hjá okkur.