15. október
Það hefur verið nóg að snúast hjá okkur í 7. bekk.
Síðastliðinn þriðjudag fórum við í menningarferði til Reykjavíkur þar sem við fórum í Þjóðmenningarhúsið og í Þjóðminjasafnið. Allir voru áhugasamir og til fyrirmyndar í alla staði. Ferðin endaði á því að allir fóru að skauta í Egilshöllinni og allir skemmtu sér vel.
Við erum að vinna á fullu í að skrifa inn uppskriftir. Ég held að þetta sé nú alveg að koma hjá okkur og vonandi getum við klárað í næstu viku og byrjað að prenta. Við fengum styrk frá Flúðafisk en okkur var gefið búnt af hvítum blöðum til ljósritunar og við þökkum kærlega fyrir það.
Ég óska öllum góðrar helgar með þökk fyrir góða viku.