6. október
Í stærðfræði höfum við verið að læra um ummál og flatarmál. Við mældum ummál og flatarmál fótboltavallarins og sandkassans og svo til gamans mældum við rúmmál sandkassans. Nemendur fengu hefti og dæmi í bókum sem tengist efninu og það hefur gengið vel en einhverjir þurfa þó að vinna heima til þess að vera búnir fyrir föstudag en þá er könnun úr efninu.
Í gær byrjuðum við á uppskriftarbók. Nemendur safna saman uppáhalds uppskriftunum sínum og við ætlum að gefa uppskriftarbók út og reyna að safna okkur pening svo við komust aftur í Skemmtigarðinn eins og síðastliðið vor.
Nemendur í 7. bekk eru duglegir að blogga í náttúrufræðinni og ég vil hvetja alla til þess að lesa bloggið þeirra. Það er svo sannarlega þess virði.