Posted by hallas on okt. 20, 2009 in
Uncategorized
Vikan hefur gengið vel hjá okkur. Í stærðfræði erum við að læra um almenn brot, tugabrot og prósentur og mér sýnist það ganga nokkuð vel.
Ég minni á að á föstudag byrjar vetrarfríið og nemendur mæta aftur í skólann á þriðjudag, þ.e. 27. október.
Posted by hallas on okt. 16, 2009 in
Uncategorized
Það hefur verið nóg að snúast hjá okkur í 7. bekk.
Síðastliðinn þriðjudag fórum við í menningarferði til Reykjavíkur þar sem við fórum í Þjóðmenningarhúsið og í Þjóðminjasafnið. Allir voru áhugasamir og til fyrirmyndar í alla staði. Ferðin endaði á því að allir fóru að skauta í Egilshöllinni og allir skemmtu sér vel.
Við erum að vinna [...]
Posted by hallas on okt. 8, 2009 in
Uncategorized
Á morgun er könnun úr efninu um ummál og flatarmál.
Í næstu viku byrjum við að læra um almenn brot, tugabrot og prósentur og á mánudag fá nemendur lista yfir þau dæmi sem þarf að reikna í þessari lotu. Lotunni lýkur með könnun úr efninu fimmtudaginn 22. október.
Posted by hallas on okt. 6, 2009 in
Uncategorized
Í stærðfræði höfum við verið að læra um ummál og flatarmál. Við mældum ummál og flatarmál fótboltavallarins og sandkassans og svo til gamans mældum við rúmmál sandkassans. Nemendur fengu hefti og dæmi í bókum sem tengist efninu og það hefur gengið vel en einhverjir þurfa þó að vinna heima til þess að vera búnir fyrir [...]