0

9. desember – það sem framundan er

Posted by hallas on des. 9, 2009 in Uncategorized

Jæja þá ætla ég að blogga aðeins enda komin tími til. 

Þá styttist í litlu jólin og jólafríið.  Litlu jólin eru 18. desember og verða með hefðbundnum hætti.  Nemendur verða með atriði þar sem þeir ætla að syngja og við byrjum að æfa á fullu í næstu viku og notum eitthvað af stærðfræðitímunum og náttúrufræðitímunum til þess. 

Við ætlum að hafa pakkaleik og allir þurfa að koma með eitthvað til þess að gefa en passa að stilla verði í hóf. Ég vil endilega að nemendur komi með kerti til að hafa inni í stofu því það gerir allt svo hátíðlegt hjá okkur.

 
0

2. nóvember

Posted by hallas on nóv. 2, 2009 in Uncategorized

Þá styttist í að fyrstu önninni sé senn lokið.  Tíminn líður ótrúlega hratt og það styttist í jólin.

Nemendur hafa nú lokið uppskriftarbókinni sinni og ætla að selja hana á 400 kr. stykkið.  Í bókinni eru líka skemmtilegar þrautir þannig að á meðan beðið er eftir að bakan bakist eða maturinn eldist er hægt að vinna í þrautunum.  Uppskriftarbókin er liður í fjáröflun fyrir bekkinn svo við komumst í ferðalag í vor eins og síðastliðið vor en þá fórum við í skemmtigarðinn í Reykjavík og skemmtum okkur frábærlega.

Þar sem líður að annarlokum er stutt próf í stærðfræði í næstu viku en kannanir og skiladæmi gilda einnig til einkunna.

 
0

20. október

Posted by hallas on okt. 20, 2009 in Uncategorized

Vikan hefur gengið vel hjá okkur.  Í stærðfræði erum við að læra um almenn brot, tugabrot og prósentur og mér sýnist það ganga nokkuð vel. 

Ég minni á að á föstudag byrjar vetrarfríið og nemendur mæta aftur í skólann á þriðjudag, þ.e. 27. október.

 
0

15. október

Posted by hallas on okt. 16, 2009 in Uncategorized

Það hefur verið nóg að snúast hjá okkur í 7. bekk. 

Síðastliðinn þriðjudag fórum við í menningarferði til Reykjavíkur þar sem við fórum í Þjóðmenningarhúsið og í Þjóðminjasafnið.  Allir voru áhugasamir og til fyrirmyndar í alla staði.  Ferðin endaði á því að allir fóru að skauta í Egilshöllinni og allir skemmtu sér vel.

Við erum að vinna á fullu í að skrifa inn uppskriftir.  Ég held að þetta sé nú alveg að koma hjá okkur og vonandi getum við klárað í næstu viku og byrjað að prenta.  Við fengum styrk frá Flúðafisk en okkur var gefið búnt af hvítum blöðum til ljósritunar og við þökkum kærlega fyrir það. 

Ég óska öllum góðrar helgar með þökk fyrir góða viku.

 
0

8. október

Posted by hallas on okt. 8, 2009 in Uncategorized

Á morgun er könnun úr efninu um ummál og flatarmál. 

Í næstu viku byrjum við að læra um almenn brot, tugabrot og prósentur og á mánudag fá nemendur lista yfir þau dæmi sem þarf að reikna í þessari lotu.   Lotunni lýkur með könnun úr efninu fimmtudaginn 22. október.

 
0

6. október

Posted by hallas on okt. 6, 2009 in Uncategorized

Í stærðfræði höfum við verið að læra um ummál og flatarmál.  Við mældum ummál og flatarmál fótboltavallarins og sandkassans og svo til gamans mældum við rúmmál sandkassans.  Nemendur fengu hefti og dæmi í bókum sem tengist efninu og það hefur gengið vel en einhverjir þurfa þó að vinna heima til þess að vera búnir fyrir föstudag en þá er könnun úr efninu.

Í gær byrjuðum við á uppskriftarbók.  Nemendur safna saman uppáhalds uppskriftunum sínum og við ætlum að gefa uppskriftarbók út og reyna að safna okkur pening svo við komust aftur í Skemmtigarðinn eins og síðastliðið vor.

Nemendur í 7. bekk eru duglegir að blogga í náttúrufræðinni og ég vil hvetja alla til þess að lesa bloggið þeirra.  Það er svo sannarlega þess virði.

 
0

21. september

Posted by hallas on sept. 21, 2009 in Uncategorized

Þá er samræmdum prófum lokið hjá nemendum og lífið farið að ganga sinn vanagang hér í skólanum.

Við ræddum það í lífsleikni í dag hvort við ættum að vera með fjársöfnun fyrir bekkinn svo við gætum kannski endurtekið bekkjarferð eins og farin var í fyrra vor.  Reyndar var sú ferð mikið til tenglum að þakka þar sem þeir komu inn í þetta og hjálpuðu til með mat og keyrslu.  Nemendur vildu helst gefa út uppskriftarbók eða bækling og við ætlum að skoða það en væntanlega byrjum við undirbúning næsta mánudag.  ´

Nú byrjar stærðfræðin á fullum krafti eftir upprifjanir og þ.a.l. heimavinnan líka og næsta föstudag skila nemendur fyrstu skiladæmunum.

Í lokin vil ég auglýsa eftir myndum sem teknar voru í vorferðinni í fyrra.  Það er svo gaman að setja þær hér inn á bloggsíðuna okkar :)

 
0

16. september

Posted by hallas on sept. 16, 2009 in Uncategorized

Við erum búin að vera að rifja upp í stærðfræðinni og hafa nemendur fengið æfingarhefti til þess.  Eins og allir vita eru samræmd próf á morgun og á föstudag og gott er að vera vel hvíldur fyrir þau þar sem prófin taka þrjár klukkustundir.

 
0

2. september

Posted by hallas on sept. 2, 2009 in Uncategorized

Í stærðfræði í dag fórum við yfir könnun sem nemendur gerðu í síðustu viku.  Við erum aðallega í upprifjun þessa dagana og æfum okkur fyrir samræmd próf sem verða vikuna eftir réttir.

 
0

Velkomin

Posted by hallas on sept. 2, 2009 in Uncategorized

Þá ætlum við loks að byrja á blogginu okkar.  Hér skrái ég inn það sem er að gerast í skólanum, hjá bekknum og fjalla um áherslur hverju sinni í náminu þeirra.   Hlakka til samstarfsins.

Copyright © 2010 7. bekkur All rights reserved.
Desk Mess Mirrored v1.2 theme from BuyNowShop.com.