Góðan dag kæru lesendur.

Það kom að því, ég lét verða að því að setjast niður og opna bloggið okkar.Veturinn hefur farið vel af stað, nemendur og kennarar að kynnast og lífið að falla í fastar skorður. Það verður nóg að gera á næstunni þar sem Flúðaskóli er að verða 80 ára á næstunni. Auðvitað verður gert eitthvað skemmtilegt á þessum tímamótum og taka 8.bekkingar að sjálfsögðu þátt í þeim undirbúningi.

Í gær fengum við gestakennara frá HÍ, þeir voru að kynna forritið Exel fyrir krökkunum. Þessi nýbreytni féll í góðan jarðveg.

Kveðja úr 8.bekk Bára

No comment


Name


Email (will not pubblished)


Website/URL