Göngudagurinn mikli!

Their sem hafa verid med í thessum ferdum á vegum Flúdaskóla í gegnum tídina, thekkja líklega thennan dag:). Thegar tharf ad labba og labba og labba thví lestarnar henta ekki inn í skodunarferdina eda thad er audveldara ad labba bara leidina, frekar en ad 30 manns skipti um lest og aftur lest o.s.frv. Thad var dagurinn í dag;) Erfidi gærdagsins (adallega Bakken-erfidid) kom í ljós strax í morgunsárid thegar mjög svo syfjadir og threyttir nemendur gátu engan veginn opnad augun og hvad thá ad fara ad eiga einhver samskipti vid danskinn:). Allt lukkadist thetta nú thó og endadi med landsleik milli Dana og Íslendinga, „hrein lid“. „Mikid svindl og litlar reglur „;) urdu til thess ad Danirnir unnu okkur med einu marki! Enda vid ekki einu sinni almennilega skóud og varla vöknud;)!!!!
Vid nádum sem sagt „med miklum harmkvælum“ ad skoda eftirfarandi stadi (restin úr bæklingnum sem thau útbjuggu;) : Jónshús (ad utan;), Kastellet, Litlu Hafmeyjuna ( „…er THETTA thessi hafmeyja….?? Vá, hvad hún er lítil!!!“) og Gefion Springvandet. Tvo tíma fengu thau sídan til ad skoda Strikid og allt thad mikla mannlíf sem thar er á föstudegi í gódu vedri. Mikid af götulistafólki á öllum hornum thví nú um helgina er „Comedy festival“ og thví ótrúlega litskrúdugt og fjölbreytt götulífid. Vorum greinilega í stórborg:). Kvöldid búid ad vera mjög notalegt thar sem thessi frábæru ungmenni sem thid eigid, foreldrar, hafa skemmt sér vid ad hoppa, skoppa og sveifla sér í leikfimisalnum, borda nammi og spjalla. Krakkarnir eru búnir ad vera sér og sínum til sóma í alla stadi, allan tímann. Thau koma einhver theirra heim med blödrur á fótum og dulítid threytt en vonandi afskaplega glöd og thakklát öllum theim sem hafa gert theim mögulegt ad fara í thessa ferd. Vid thökkum kærlega fyrir allan studninginn og hvatninguna, alveg frá thví ad ákvedid var ad fara í thessa ferd. Og nú sídast, takk fyrir allar kvedjurnar til okkar hér í útlandinu.
Thad er ekki laust vid ad gæti tilhlökkunar vegna heimferdar en ef allar áætlanir standast hjá flugfélaginu er áætlud lending á Flúdum um kl. 18-18.30. Vid Evelyn og foreldrarnir sendum okkar bestu kvedjur og langar ad segja ykkur ad vid erum búin ad hlæja og skemmta okkur mikid med thessum frábæru unglingum, fyrir utan hvad vid erum oft búin ad finna til stolts yfir thví hve kurteis og ljúf thau eru, hvar sem vid komum og hvad sem thau eru ad gera.
Frábær ferd nær thví á enda komin og vonandi ad morgundagurinn gangi vel og heimferdin öll. Takk.

Edited: ágúst 28th, 2009

Heitt, heitt, heitt:)

Laaangur dagur ad baki. Mörg skref tekin í dag, bædi í eiginlegri og óeiginlegri merkingu:).
Hitinn var á stundum hreint óbærilegur í dag og thví var ákvedid ad fækka skodunarferdum og taka hlutina frekar í hægum gír. Sú hægaganga vard thó ad engur thegar kvöldid rann upp med Bakken og öllu hans tryllitækjum. Nádum ad sjá vaktaskipti lífvardanna hjá Amalienborg fyrir hádegi og var thá stefnan tekin á Christiania med stuttu pylsustoppi vid Nýhöfn. „Anna, Anna, ég keypti mér pulsu á dönsku“ !!!! Ekki leidinlegt thegar nemendur stíga svona skref!! Vor Frelsers Kirke var lokud en turninn med sínum rangsnúnu tröppum, var opinn og klifu nær allir strákarnir og nokkrar stelpur hann upp í topp. Magnad útsýni thadan og hreint ótrulega lítid pláss í efstu tröppum! Ekki fyrir lofthrædda svo thid sem thekkid ykkar fólk, vitid líklega hverjir fóru ekki upp:). Eftir ad hafa farid nokkud hratt í gegnum Christiania med gapandi munn og í forundran:) var mikid gott ad setjast inn í loftkælda lest og dóla sér til Klampenborg. Thar var sko fjör. Vid byrjudum á thví ad fara á ströndina Bellevue og thar fóru mörg theirra í sjóinn. Vid eyddum nær tveimur klst. vid busl í 18 stiga heitum sjónum. Eitthvad voru marglytturnar ekki sáttar vid thessa innrás (ekki útrás:) Íslendinganna og gerdu sér vidkvæma húd Íslendinga ad mat svo nokkrir nemendur eru nú vída med merki eftir. En, iss, thad gerdi nú ekki mikid til, sögdu thau:). Bakken var sídan tekinn med trompi og erum vid nú rétt nýkomin heim. Allir sáu rúm og sæng í hillingum en verda nú líklega ad gera sér vindsængur og svefnpoka ad gódu. Thennan dag fáid thid svo betur ad heyra um thegar kemur ad myndasýningunni en margt skemmtilegt hefur komid upp á í dag sem vid ætlum okkur ad geyma til hennar.
Thau og vid öll erum frekar mikid threytt en ósk¨p sátt og sæl. Morgundagurinn gengur út á vinnu med Dönum fram ad hádegi og thau ætla ad bjóda okkur bædi í morgunmat og hádegismat. Sídan tharf ad vinna eins upp frá thví í dag og vonandi ad hitinn verdi ekki eins mikill og í dag. Ad sídustu fá thau lausa stund á Strikinu. Meira um thad á morgun.

Edited: ágúst 27th, 2009

Dagur 4 – Rundetårn og Rosenborg.

Íslenskir og danskir fætur á vegum Flúdaskóla og Grantofteskole, örkudu léttilega upp Rundetårn (Sívala turninn) og um gólf Rósenborgarhallar í dag. Krúnudjásnin vekja alltaf jafn mikinn áhuga nemenda en ekki sídur eru forvitnilegir byssuklæddir hermennirnir sem gæta djásnanna í Rosenborgarhöll. Eftir ad hafa horft á kostuleg skipti á vaktinni vid höllina, skiptum vid lidi og nemendur fengu gódan tíma til ad skoda sig um í midbænum, næra sig og skoda áhugaverd stadi eins og t.d. Ripley´s sem er skemmtilegt safn vid Rådhuspladsen. Til Ballerup vorum vid komin um midjan dag og ekkert annad ad gera en ad taka thad rólega fram ad sameiginlegum kvöldverdi danskra og íslenskra. Búid ad spila fótbolta thar sem saman spiludu í lidi íslenskir og danskir og thví ekkert hægt ad tala um hvort Ísland hafi unnid Danmörku. Allavega erum vid ekkert ad tala um einhver 14-2 úrslit eins og í den:). Danirnir stoppudu reyndar ótharflega stutt fannst okkur en vid fundum okkur thá bara eitthvad annad til dundurs og kúldrudumst eins og best vid gátum. Á morgun er langur og strangur dagur framundan thví vid ætlum ad byrja á Christiania og Vor Frelsers Kirke, kíkja sídan á Amalienborg, Operahuset og Den Lille Havfrue. Stefnt er ad thví ad enda á Bakken ef fætur og orka leyfa. Sendum gódar kvedjur til ykkar allra og thökkum í leidinni kvedjur til okkar. Allir spyrja hvort mamma eda pabbi hafi skrifad eitthvad inn á bloggid svo gódar kvedjur eru mjög vel thegnar:).

Edited: ágúst 26th, 2009

Dagur 3 var strangur dagur:)

Já, Tivoli tekur á. Og líka ad vinna med dönsku krökkunum thar sem reynir á samvinnu, tungumálakunnáttu, tholinmædi og jákvædni:). Og líka ad borda ödruvísi mat en er heima, sofa vid adrar adstædur en eru heima, vera innan um alla, alla daga. Já, dagur 3 er oft erfidur, thegar nýjabrumid er farid ad mestu:) en ad sjálfsögdu óendanlega skemmtilegur líka thví eitthvad nýtt bætist í sarpinn dag hvern. Vinnan gekk vel í skólanum í dag en thá reyndi mjög á hæfni ýmis konar. Hard rock café stód fyrir sínu og Tivoli svo sannarlega líka. Langflestir fóru í nær öll tækin en audvitad voru einhverjir sem voru áhorfendur og í klapplidinu:). Thó fætur og háls væru aumir og bólgnir af Tivolistredi, kom thad ekki í veg fyrir mikil hróp, köll og hlaup thegar hér á hladinu okkar vid Grantofteskolen, stód thessi líka sperrti froskur og tók á móti okkur, nú undir midnættid. Fannst nú sumum nóg um skrækina sem skárust í gegnum loftid og svei mér ef ekki kviknudu ljós í gluggum nærliggjandi íbúda og húsa;). Gódur en strangur dagur á enda og morgundagurinn verdur ekki sídur spennandi thar sem Danirnir koma med okkur í skodunarferd um Kaupmannahöfn. Thá ætlum vid ad skoda Rosenborg, Amalienborg, Operaen og Rundetårn. Dagurinn endar á sameiginlegri veislu kl. 18.00 en Danirnir ætla ad bjóda okkur í mat og sídan á ad „hygge sig“:). Látum thetta vera gott inn í nóttina og sendum ykkur gódar kvedjur hédan úr borginni ljúfu.

Edited: ágúst 25th, 2009

Danskt símanúmer.

Gleymdi ad láta danska símanúmerid mitt fylgja med: 0045-27941007. Einnig hægt ad senda mér póst á netfangid: anna@fludaskoli.is. Gott í nóttina:)

Edited: ágúst 24th, 2009

Dagur 2

Thá er verulega vidburdarríkum degi lokid. Dagskráin okkar hefur reyndar ridlast frekar mikid thar sem Danirnir breyttu samverutímanum vid okkur svo í dag hittum vid ekki Danina heldur fórum til Kaupmannahafnar. Thar voru nokkrir leidsögumenn sem leiddu okkur í gegnum Hovedbanegården, Rådhuspladsen, Strøget og Kongens Nytorv. Nemendur fengu kort í hendur og komu sér sjálfir frá Rådhuspladsen, í gegnum Strikid og upp á Kongens Nytorv. Sídan sigldum vid um Kanelen og sáum hverja stórbygginguna á eftir annarri. Búid ad „brjóta margar brýr“ í dag, thví thó nokkrir hafa aldrei komid í lest fyrr en í dag, thó nokkrir hafa aldrei séd svona mörg thjóderni, thó nokkrir hafa aldrei komid til stórborgar og thví er hradinn, lyktin, hávadinn, mannmergdin dálítid yfirthyrmandi og jafnvel meira en svo. En allir eru skælbrosandi núna og rifja upp vidburdi og kuppákomur dagsins. Ég átti ad skila kvedju „til gamla settsins“ uppi á Íslandi og geri thad hér med:). Okkur finnst ALLT hrikalega dýrt!!! Morgundagurinn spennandi thví eftir vinnu med Dönum er stefnan sett á Tivoli. Meira um thad á morgun.

Edited: ágúst 24th, 2009

Komin á stadinn.

Thá erum vid lent heilu og höldnu hér í Grantofteskolen. Allt gekk vel, fyrir utan dálitla bid á Kastrupflugvelli. Erum farin ad sofa, í molluhita og raka. Spennandi ad sjá hvernig allt lítur út hérna á morgun thegar ordid er bjart:)

Edited: ágúst 23rd, 2009

Brottför að skella á.

Þá ætti allt að vera klárt hjá okkur, 10. bekk í Flúðaskóla og þeirra „fylgisveinum“. Set þetta hér inn til að athuga hvort bloggsíðan virki ekki fínt.
Brottför frá Flúðaskóla kl. 11.30 og fínt að mæta u.þ.b. 10 mín. fyrir brottför.
Kveðja.
Anna Ásm.

Edited: ágúst 22nd, 2009

10. bekkur á leið til Danmerkur

Brottför er á sunnudag.

Edited: ágúst 21st, 2009